FRÉTT VERÐLAG 12. JÚLÍ 2004

Vísitala neysluverðs í júlí 2004 er 234,6 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,47% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 227,7 stig, 0,44% lægri en í júní.
       Eigið húsnæði í vísitölunni lækkaði um 0,6% (vísitöluáhrif -0,08%). Markaðsverð á húsnæði hækkaði þó um 0,7% (0,09%) en vaxtalækkun í kjölfar breytingar á kerfi húsnæðislána hjá Íbúðalánasjóði leiddi til lækkunar árgreiðslu um 1,35% (-0,17%).
Sumarútsölur eru víðast hafnar og lækkaði verð á fötum og skóm um 7,8% (-0,45%). Þá lækkaði verð á bensíni og olíu um 2,3% (-0,1%).
       Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,1% sem jafngildir 4,6% verðbólgu á ári (án húsnæðis 3,2%).
       Vísitala neysluverðs í júlí 2004, sem er 234,6 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst 2004. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.632 stig fyrir ágúst 2004.

Talnaefni
 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.