FRÉTT VERÐLAG 30. ÁGÚST 2022

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í ágúst 2022, er 555,1 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,29% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 459,6 stig og hækkar um 0,04% frá júlí 2022.

Sumarútsölum er að ljúka og hækkaði verð á fötum og skóm um 3,5% (áhrif á vísitöluna 0,11%) og verð á húsgögnum og heimilisbúnaði hækkaði um 6,4% (0,14%).

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,9% (0,17%). Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði um 8,7% (-0,22%) og verð á bensíni og olíum lækkaði um 3,9% (-0,16%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 9,7% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 7,1%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í ágúst 2022, sem er 555,1 stig, gildir til verðtryggingar í október 2022. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 10.960 stig fyrir október 2022.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.