FRÉTT VERÐLAG 21. DESEMBER 2012

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desember 2012 er 402,2 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,05% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 383,3 stig og lækkaði um 0,05% frá nóvember.

Verð á bensíni og díselolíu lækkaði um 1,9% (vísitöluáhrif -0,11%) en kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 0,5% (0,07%). Þar af voru 0,11% áhrif af hækkun markaðsverðs en -0,04% áhrif af lækkun vaxta.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,2% og vísitalan án húsnæðis um 4,8%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,7% sem jafngildir 2,6% verðbólgu á ári (3,2% verðbólgu á ári fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Meðalvísitala neysluverðs árið 2012 var 397,3 stig, 5,2% hærri en meðalvísitalan 2011. Samsvarandi breyting var 4,0% árið 2011 og 5,4% árið 2010.

Meðalvísitala neysluverðs án húsnæðis árið 2012 var 377,8 stig, 5,3% hærri en meðalvísitalan 2011. Samsvarandi breyting var 3,8% árið 2011 og 7,5% árið 2010.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í desember 2012, sem er 402,2 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2013. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.941 stig fyrir febrúar 2013.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2011–2012
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2011
Desember 386,0 0,4 4,5 2,8 3,5 5,3
2012
Janúar 387,1 0,3 3,5 2,6 3,8 6,5
Febrúar 391,0 1,0 12,8 6,8 5,4 6,3
Mars 395,1 1,0 13,3 9,8 6,3 6,4
Apríl 398,2 0,8 9,8 12,0 7,2 6,4
Maí 398,1 0,0 -0,3 7,5 7,1 5,4
Júní 400,1 0,5 6,2 5,2 7,4 5,4
Júlí 397,2 -0,7 -8,4 -1,0 5,3 4,6
Ágúst 396,6 -0,2 -1,8 -1,5 2,9 4,1
September 399,6 0,8 9,5 -0,5 2,3 4,3
Október 400,7 0,3 3,4 3,6 1,3 4,2
Nóvember 402,0 0,3 4,0 5,6 2,0 4,5
Desember 402,2 0,0 0,6 2,6 1,1 4,2

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2012
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Nóvember Desember %
Vísitala neysluverðs 225,2 225,3 4,2 4,2
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 204,2 204,7 5,5 0,7
Búvörur og grænmeti 190,4 190,9 5,8 0,4
Innlendar vörur án búvöru 214,5 215,0 5,2 0,4
Innfluttar vörur alls 201,1 200,8 3,7 1,4
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  194,0 193,7 3,7 1,2
Dagvara 202,8 203,3 4,8 0,8

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.