FRÉTT VERÐLAG 30. OKTÓBER 2007

Vísitala framleiðsluverðs í september 2007 var 118,8 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 1,8% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 127,6 stig, sem er hækkun um 0,8% (vísitöluáhrif 0,3%) frá fyrri mánuði, og vísitala fyrir stóriðju var 134,1 stig, lækkaði um 8,3% (-1,7%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,9% milli mánaða (0,2%) en vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 2,0% frá ágúst (-0,5%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hélst óbreytt milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 2,8% (-1,8%).

Frá september 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 1,6%, sjávarafurðir hafa haldist óbreyttar í verði,  afurðir stóriðju hafa lækkað um 4,2% og matvælaverð hefur hækkað um 3,3%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
2007 Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar 
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
Janúar 0,9 0,4 4,1 0,7 0,2 1,3
Febrúar -3,1 -3,5 -3,7 0,7 -0,2 -4,8
Mars 0,0 -0,3 0,4 -0,4 0,6 -0,3
Apríl -0,5 0,4 -3,6 0,1 0,1 -0,9
Maí -2,4 -4,2 -1,2 0,0 -0,5 -3,5
Júní -0,1 -1,0 -1,3 -0,1 0,8 -0,7
Júlí -2,3 0,0 -6,5 0,1 -1,1 -3,0
Ágúst 4,8 5,7 9,1 -0,1 0,7 7,3
September -1,8 0,8 -8,3 0,9 0,0 -2,8

Breyting frá fyrra ári (%)
2007 Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar 
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
Janúar 22,4 28,6 42,0 7,1 8,0 30,9
Febrúar 15,6 23,1 24,9 6,8 7,1 20,2
Mars 9,5 14,4 12,2 5,8 7,3 10,4
Apríl 3,9 6,7 1,2 4,9 6,9 2,1
Maí 1,0 2,0 -3,2 4,0 5,5 -1,7
Júní -4,8 -4,5 -14,8 2,3 4,1 -9,5
Júlí -6,5 -6,8 -10,2 2,2 0,9 -10,7
Ágúst 0,2 1,0 2,1 2,2 1,7 -0,9
September -1,6 0,0 -4,2 3,3 2,0

-4,0

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.