FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. MAÍ 2024

Fluttar voru út vörur fyrir 72,9 milljarða króna fob í apríl 2024 og inn fyrir 119,3 milljarða cif (112,8 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í apríl, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 46,4 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 21,6 milljarða króna í apríl 2023 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruskiptajöfnuðurinn í apríl 2024 var því 24,9 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 400,6 milljarða króna sem er 75,8 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings dróst saman um 10% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í apríl 2024 var 3,8 milljörðum króna meiri (5%) en í apríl 2023, fór úr 69,1 milljarði króna í 72,9 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 919,7 milljarðar króna og dróst saman um 102,7 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 10% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra minnkaði um 14% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 38% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra dróst saman um 6% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 2% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 119,3 milljörðum króna í apríl 2024 samanborið við 90,6 milljarða í apríl 2023 og jókt því um 28,6 milljarða króna eða um 32%.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.320,3 milljarðar króna og minnkaði um 26,9 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr á gengi hvors árs fyrir sig. Í stærri vöruflokkum er verðmætaaukningin mest í fjárfestingavörum og mat- og drykkjarvörum. Á móti kemur samdráttur í verðmæti innflutnings á hrávörum og rekstrarvörum og eldsneyti og smurolíum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 194,1 og var gengið 0,6% veikara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 193,0. Gengið var 0,8% veikara í apríl 2024 (196,7) samanborið við apríl 2023 (195,1).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir apríl og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.