FRÉTT MANNFJÖLDI 16. JÚNÍ 2017

Hinn 1. janúar 2017 voru 35.997 innflytjendur á Íslandi eða 10,6% mannfjöldans. Það er fjölgun frá því í fyrra þegar þeir voru 9,6% landsmanna (31.812). Fjölgun innflytjenda heldur því áfram, en frá árinu 2012 hefur þeim fjölgað úr því að vera 8,0% mannfjöldans uppí 10,6%. Annarri kynslóð innflytjenda fjölgaði einnig á milli ára, voru 4.158 í fyrra en 4.473 nú. Samanlagt er fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 12% af mannfjöldanum og hefur það hlutfall aldrei verið hærra. Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytjendum, fjölgaði einnig lítillega milli ára, voru 6,7% mannfjöldans í fyrra en 6,8% nú.

Innflytjandi er einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra sem einnig eru fæddir erlendis, svo og báðir afar hans og báðar ömmur. Önnur kynslóð innflytjenda eru einstaklingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur. Fólk er talið hafa erlendan bakgrunn ef annað foreldrið er erlent. Einstaklingur sem fæddist erlendis en á foreldra sem báðir eru fæddir hér á landi telst einnig hafa erlendan bakgrunn.

Pólverjar fjölmennastir innflytjenda
Eins og síðustu ár eru Pólverjar langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Hinn 1. janúar síðastliðinn voru 13.771 einstaklingar frá Póllandi eða 38,3% allra innflytjenda. Þar á eftir koma innflytjendur frá Litháen (Lietuva) (5,2%) og Filippseyjum (4,5%). Pólskir karlar eru 42,3% allra karlkyns innflytjenda eða 7.839 af 18.552. Litháískir karlar eru næst fjölmennastir (5,8%) og síðan karlar með uppruna frá Bretlandi (3,2%). Pólskar konur eru 34,0% kvenkyns innflytjenda og næst á eftir þeim eru konur frá Filippseyjum (6,2%), þá konur frá Thailandi (4,7%).

Karlar fjölmennari meðal innflytjenda
Hinn 1. janúar 2017 voru karlar í meirihluta meðal innflytjenda en frá 2011 hafa konur verið fjölmennari allt þar til nú. Hinn 1. janúar síðastliðin voru 1.063 karlar á hverjar 1.000 konur. En þrátt fyrir að karlar séu nokkuð fjölmennari almennt meðal innflytjenda er kynjahlutfallið mjög misjafnt eftir því hvaðan innflytjendur eiga uppruna sinn til. Þannig eru rúmlega 1.120 karlar á hverjar 1.000 konur meðal innflytjenda frá Póllandi og Litháen (Lietuva) en meðal þeirra innflytjenda sem eru frá Filippseyjum og Þýskalandi að þá eru aftur á móti rúmlega 480 karlar á hverjar 1.000 konur.

703 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang árið 2016
Í fyrra fengu 703 einstaklingar íslenskan ríkisborgararétt og er það nokkur fækkun frá fyrra ári þegar 801 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang. Af þeim 703 einstaklingum sem fengu íslenskt ríkisfang höfðu langflestir verið með ríkisfang frá Póllandi eða 224 og næst flestir með verið með ríkisfang frá Filippseyjum (55). Árið 1991 fengu fleiri karlar en konur íslenskt ríkisfang, en á hverju ári eftir það hafa konur verið í meirihluta nýrra íslenskra ríkisborgara. Það átti einnig við í fyrra þegar 411 konur fengu íslenskan ríkisborgararétt en 292 karlar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.