FRÉTT MANNFJÖLDI 18. DESEMBER 2017

Hagstofan birtir nú ný gögn um mannanöfn og nafngjafir á Íslandi samkvæmt þjóðskrá 1. janúar 2017. Þar kemur m.a. fram að Alexander var vinsælasta eiginnafn nýfæddra drengja árið 2016 og þar á eftir Aron og Mikael. Emilía var vinsælasta stúlkunafnið en þar á eftir Emma og Elísabet. Þór var langvinsælast sem annað eiginnafn drengja og þar á eftir Máni og Hrafn. María var algengasta annað eiginnafn nýfæddra stúlkna og þar á eftir Ósk og Rós.

Algengara er að börn fæðist að sumri eða hausti en yfir vetrarmánuðina, frá október og fram í mars. Alls eru rúmlega helmingur (51,5%) allra afmælisdaga á tímabilinu frá apríl til september. Í upphafi árs 2017 áttu flestir afmæli þann 27. ágúst, alls 1.054 einstaklingar. Fæstir áttu afmæli á hlaupársdag (216), jóladag (689) og gamlársdag (741).

Guðrún og Jón eru enn algengustu einnöfnin
Í ársbyrjun 2017 voru 10 algengustu einnöfnin og fyrstu eiginnöfnin þau sömu og árið 2012. Jón var algengasta karlmannsnafnið, þá Sigurður og Guðmundur. Guðrún er algengasta kvenmannsnafnið, þá Anna og Kristín. Um 62% landsmanna bera fleiri en eitt nafn. Algengustu tvínefni karla voru Jón Þór, Gunnar Þór og Jón Ingi. Þetta voru einnig algengustu tvínefnin fimm árum áður. Algengustu tvínefni kvenna voru Anna María, Anna Margrét og Anna Kristín.

Færri en áður heita Guðrún, Kristín, Sigurður, Gunnar og Ólafur
Um 200 algengustu nöfnin á Íslandi eru eiginnöfn um 80% landsmanna. Sömu 20 nöfnin hafa verið algengust á Íslandi síðastliðin 100 ár (sjá mynd 1 og 2). Hinsvegar má sjá að færri börnum sem fæddust á síðustu tíu árum eru gefin nöfnin Guðrún, Kristín, Sigurður, Gunnar og Ólafur. Sum nöfn hafa notið mikilla vinsælda árum saman, eins og Kristján, Anna, Katrín og Elísabet. Þetta mynstur hefur hins vegar breyst nokkuð og eru nöfnin Emma, Sara, Emilía, Alexander, Aron, Viktor og Mikael vinsæl hjá yngri börnum en eru sjaldgæf í eldri aldurshópum.

Á mynd 1 má sjá dæmi um algengustu nöfn kvenna (vinstra megin) svo og vinsæl nöfn ungra stúlkna (hægra megin) 1. janúar síðastliðinn. Mynd 2 sýnir að sama skapi dæmi um algengustu nöfn karla (vinstra megin) og vinsæl nöfn ungra drengja (hægra megin).

Eiginnöfn ömmu og afa
Yfir 35% einstaklinga 30 ára og yngri bera sama eiginnafn og afi þeirra eða amma. Hlutfallið er enn hærra í eldri aldurshópum. Í heildina bera 8% þeirra sem er 50 ára eða yngri eiginnafn föður eða móður, og er það algengara hjá körlum en konum.

 

Föðurnöfn sem kenninöfn
Í ársbyrjun 2017 báru 82% landsmanna kenninafn föður eða móður, 4% báru ættarnafn og 14% önnur kenninöfn, flest af erlendum uppruna. Algengast var að konur á aldrinum 18 til 35 ára kenndu sig við móður.

Um 70% einstaklinga sem áttu föður með ættarnafn báru það sem kenninafn, en 30% föður- eða móðurnöfn. Af fólki sem átti móður með ættarnafn báru 15% ættarnafn móður sem kenninafn, oftar stúlkur en drengir, en 85% föður- eða móðurnöfn.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.