FRÉTT MANNFJÖLDI 18. SEPTEMBER 2012

Aron var vinsælasta eiginnafn nýfæddra drengja á árinu 2011 en Emilía vinsælasta stúlkunafnið. Bæði nöfnin voru einnig vinsælust á árinu 2010.

Flestum nýfæddum börnum var gefið fleiri nöfn en árið 2011. Þór var langvinsælasta annað eiginnafnið hjá drengjum, en þar á eftir Ingi og Freyr. María var vinsælasta annað eiginnafnið hjá stúlkum ásamt Ósk, en þessi nöfn hafa vermt fyrsta og annað sætið undanfarin ár. Á eftir þeim kom stúlkunafnið Rós sem þriðja vinsælasta síðara eiginnafn nýfæddra stúlkna.

Þegar litið er á allan mannfjöldann í ársbyrjun 2012 eru 10 vinsælustu einnefnin og fyrstu eiginnöfnin alveg þau sömu og árið 2007. Hjá körlum er Jón vinsælasta nafnið, þá Sigurður og svo Guðmundur. 10 algengustu nöfnin hafa verið þau sömu frá 2007 nema hvað Kristján er nú í 7. sæti í stað Magnúsar sem færist niður um eitt sæti. Af kvenmannsnöfnum er Guðrún vinsælast, þá Anna og svo Sigríður.

Flestir landsmenn bera fleiri en eitt nafn. Í ársbyrjun 2012 voru þrjár vinsælustu samsetningarnar hjá körlum Jón Þór, Gunnar Þór og Jón Ingi. Þetta voru einnig algengustu tvínefnin fimm árum fyrr. Hjá konum voru þrjár vinsælustu samsetningarnar Anna María, Anna Margrét og Anna Kristín. Þetta voru líka þrjú algengustu tvínefnin árið 2007. Kvenmannsnafnið Anna er hins vegar afar vinsælt sem fyrra nafn, en hún reyndist fyrra nafnið í sex af 10 algengustu tvínefnunum.

Afmælisdagar á Íslandi dreifast ekki jafnt yfir árið. Algengara er að börn fæðist að sumri og á hausti en yfir vetrarmánuðina, frá október og fram í mars. Alls eru 51,5% allra afmælisdagana frá apríl til september. Í upphafi árs 2012 gátu flestir átt von á því að halda upp á afmælisdaginn 27. september 2012, alls 995 einstaklingar. Fæstir áttu afmælisdag á hlaupársdag, 29. febrúar, eða 198 manns. Að öðru leyti eru jóladagur (653) og gamlársdagur (698) sjaldgæfir afmælisdagar ásamt öðrum hátíðisdögum um jólin.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.