FRÉTT LÍFSKJÖR 12. NÓVEMBER 2015


Byrði húsnæðiskostnaðar var að jafnaði hæst hjá leigjendum á almennum markaði árið 2014. Það ár varði dæmigerður leigjandi á almennum markaði 24,3% af ráðstöfunartekjum sínum í húsnæðiskostnað og 18,7% þeirra vörðu meira en 40% af ráðstöfunartekjum sínum í húsnæði. Byrðin hækkaði hratt hjá leigjendum eftir 2007.

 

Byrði húsnæðiskostnaðar hjá þeim sem bjuggu í eigin húsnæði með áhvílandi húsnæðislán lækkaði hinsvegar eftir 2006, úr 20,2% í 16,1% árið 2011 en afborganir húsnæðislána eru þar undanskildar. Árið 2014 varði hinn dæmigerði eigandi með lán 16,3% af ráðstöfunartekjum sínum í húsnæði og 6,1% hópsins var með íþyngjandi húsnæðiskostnað.


Íþyngjandi húsnæðiskostnaður er sérstaklega tíður á meðal tekjulægri einstaklinga, en árið 2014 vörðu 24,9% af fólki á lægsta tekjufimmtungi 40% eða meira af ráðstöfunartekjum sínum í húsnæði. Á næsta tekjubili fyrir ofan var hlutfallið 7,1%.

Félagsvísar: Byrði húsnæðiskostnaðar 2014 - Hagtíðindi

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1286 , netfang lifskjararannsokn@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.