FRÉTT FYRIRTÆKI 01. FEBRÚAR 2016

Nýskráningum einkahlutafélaga á árinu 2015 fjölgaði um 16% frá árinu 2014. Alls voru 2.368 ný félög skráð á árinu, borið saman við 2.050 árið áður. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í fasteignaviðskiptum, þar sem þeim fjölgaði milli ára úr 222 í 352, eða um 59% frá fyrra ári. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum fjölgaði má nefna byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð þar sem nýskráningum fjölgaði úr 223 í 292 (31%) og rekstur gististaða og veitingarekstur þar sem fjölgunin var úr 131 í 169 nýskráningar (29%). Mest hlutfallsleg fækkun nýskráninga árið 2015 var í upplýsingum og fjarskiptum, eða um 8% borið saman við fyrra ár (úr 185 nýskráningum í 171).

Ef skoðuð er skipting á nýskráningum einkahlutafélaga og hlutafélaga milli landshluta árið 2015 sést að þeim fjölgaði hlutfallslega mest á Vesturlandi, þar sem 81 félag var nýskráð árið 2015, borið saman við 57 nýskráningar árið 2014 (42%). Mestur hlutfallslegur samdráttur á nýskráningum milli ára var á Vestfjörðum, þar sem 34 félög voru nýskráð árið 2015, borið saman við 46 árið áður (26%).

Gjaldþrotum einkahlutafélaga á árinu 2015 fækkaði um 27% frá fyrra ári. Alls voru 587 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á árinu, samanborið við 799 árið áður. Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum á árinu 2015 mest í fjármála- og vátryggingastarfsemi, þar sem þau voru 32 árið 2015 borið saman við 56 árið 2014 (43%). Gjaldþrotum fækkaði í öllum helstu atvinnugreinabálkum milli áranna 2014 og 2015. Hlutfallslega fækkaði þeim hægast í  fasteignaviðskiptum, eða um 8% milli ára (úr 80 gjaldþrotum í 74).

Ef skoðuð er skipting á gjaldþrotum eftir landsvæði sést að gjaldþrotum fækkaði hlutfallslega mest á Norðurlandi eystra, þar sem 12 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta árið 2015, borið saman við 43 árið áður (72%). Mest hlutfallsleg fjölgun gjaldþrota milli ára var á Suðurlandi, þar sem 63 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta árið 2015, borið saman við 49 árið áður (29%).

Nýskráningar og gjaldþrot
  Desember   Janúar - Desember  
  2015 2014 % 2015 2014 %
Nýskráningar ehf.            
Alls 222 182 22 2.368 2.050 16
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   9 8 13 87 92 -5
C Framleiðsla  4 5 -20 91 74 23
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   32 18 78 292 223 31
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   13 23 -43 272 287 -5
H Flutningar og geymsla   4 3 33 46 47 -2
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   18 14 29 169 131 29
J Upplýsingar og fjarskipti  13 10 30 171 185 -8
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   45 38 18 357 311 15
L Fasteignaviðskipti   27 24 13 352 222 59
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   23 23 0 223 191 17
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   19 6 217 176 153 15
Aðrar atvinnugreinar 15 10 50 132 134 -1
             
Gjaldþrot            
Alls 18 48 -63 587 799 -27
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   0 2 - 21 25 -16
C Framleiðsla  1 1 0 39 52 -25
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   2 5 -60 121 150 -19
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   6 3 100 106 144 -26
H Flutningar og geymsla   0 2 -100 18 30 -40
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   1 7 -86 41 69 -41
J Upplýsingar og fjarskipti  0 4 -100 28 36 -22
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   2 3 -33 32 56 -43
L Fasteignaviðskipti   2 11 -82 74 80 -8
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   3 3 0 46 69 -33
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   0 3 -100 30 34 -12
Aðrar atvinnugreinar 1 4 -75 31 54 -43

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.