FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 15. FEBRÚAR 2024

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 29.960 í desember 2023 sem er 4% aukning samanborið við desember 2022. Á árinu 2023 störfuðu að jafnaði um 32.113 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 28.707 í fyrra.

Gistinætur á hótelum í desember 2023 voru 294.938 samanborið við 316.281 í desember 2022. Gistinætur erlendra gesta voru 239.381 í desember eða 5% færri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru 55.557, 13% færri en í desember 2022.

Í janúar voru 168.139 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 162.554 í janúar 2023. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 130.836 samanborið við 121.053 í janúar 2023.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.











Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum
Tekjur af erlendum ferðamönnum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.