FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. DESEMBER 2012

Gistinætur á hótelum í október voru 140.500 samanborið við 117.200 í október  2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 79% af heildarfjölda gistinátta í október en gistinóttum þeirra fjölgaði um 23% samanborið við október 2011. Á sama tíma voru gistinætur Íslendinga 10% fleiri en árið áður.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum. Á höfuðborgarsvæðinu voru gistinætur 105.200 eða um 17% fleiri en í október 2011. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 62%, voru 9.600 samanborið við 5.900 í október 2011. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum um 40% en þar var fjöldi gistinátta október ríflega 3.000. Gistinætur á Austurlandi voru 3.300 í október og fjölgaði um 31%. Á Suðurlandi voru 13.700 gistinætur á hótelum í október  sem er um 16% aukning samanborið við fyrra ár. Gistinóttum á Suðurnesjum fjölgaði milli ára um 11%, voru 5.700 samanborið við 5.200 í október 2011.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 17% fyrstu tíu mánuði ársins
Gistinætur á hótelum fyrstu tíu mánuði ársins voru 1.563.200 til samanburðar við 1.339.100 á sama tímabili árið 2011. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 18% á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 10%.


Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.