Áskrift og verð

Hagtíðindi má panta hér á vefnum og fá send í pósti við vægu gjaldi. Heftin má einnig skoða á rafrænu formi (PDF).

Hvert hefti kostar á bilinu 900 til 1.800 kr., allt eftir stærð. Kaupa má stök hefti en einnig er hægt að kaupa áskrift að tilteknum efnisflokkum. Áskrifendur Hagtíðinda fá sendan reikning í árslok með 15% afslætti. Til að gerast áskrifandi þarf einungis að senda Hagstofunni tölvupóst og tiltaka hvaða efnisflokk áskriftin á við.

Að minnsta kosti eitt hefti er gefið út í hverjum efnisflokki ár hvert en mest 12 hefti. Að meðaltali kemur út eitt hefti í viku hverri árið um kring. Allt lesefni Hagtíðinda er á íslensku en töflur og myndatextar eru jafnframt á ensku. Samantekt á ensku er einnig í hverju hefti.

Um efnisflokka
  • Land og umhverfi
Umhverfismál, útstreymi, samanburður milli landa.
  • Mannfjöldi
Mannfjöldi í sveitarfélögum og byggðarkjörnum, búferlaflutningar, fæddir, dánir, dánarorsakir, giftingar, skilnaðir, kjarnafjölskyldur, ríkisfang, mannfjöldaspá.
  • Laun, tekjur og vinnumarkaður
Vinnumarkaðsrannsóknir, atvinnuþátttaka, starfandi fólk, atvinnuleysi.
  • Fyrirtæki og umsvif
Fjöldi fyrirtækja eftir atvinnugreinum, ársreikningar fyrirtækja, nýskráning, veltutölur.
  • Sjávarútvegur
Afli og aflaverðmæti, ráðstöfun afla, vinnuafl í sjávarútvegi, fiskiskipastóllinn, útflutningur sjávarafurða.
  • Iðnaður
Vöruframleiðsla.
  • Ferðamál og samgöngur
Gistiskýrslur, gistinætur, gistirými, gestakomur, farþegar.
  • Upplýsingatækni
Notkun fyrirtækja og einstaklinga á upplýsingatæknibúnaði.
  • Verðlag og neysla                           
Vísitala neysluverðs, vísitala byggingarkostnaðar, samræmd vísitala neysluverðs, launavísitala, neyslurannsóknir, útgjöld heimila, atvinnutekjur.
  • Utanríkisverslun
Innflutningur, útflutningur, vöruskipti, vöruskiptajöfnuður.
  • Þjóðhagsreikningar
Ársfjórðungslegir þjóðhagsreikningar, landsframleiðsla, fjármál hins opinbera, búskapur hins opinbera, sveitarfélög, ársreikningar fyrirtækja, framleiðsluuppgjör þjóðhagsreikninga, veltutölur, peningamál.
  • Heilbrigðis-, félags- og dómsmál 
Lífskjör, heilbrigðismál, félagsmál, dómsmál, héraðsdómar, einkamál, opinber mál, gjaldþrot, útivistarmál.
  • Skólamál
Leikskólar, grunnskólar, framhaldsskólar, háskólar, nemendur og starfsfólk.
  • Menningarmál
Fjölmiðlun, menning, bækur, blöð, tímarit, kvikmyndir, útvarp, sjónvarp, leiklist, söfn.
  • Kosningar
Alþingiskosningar, sveitarstjórnarkosningar, forsetakosningar, kjósendur, kosningaþátttaka.
  • Hagvísar
Mánaðarlegt yfirlit yfir skammtímaþróun efnahagsmála.

Leitarvél
Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi