Ráðgjafarnefndir og notendahópar

Nokkrar ráðgjafarnefndir og notendahópar starfa í tengslum við Hagstofu Íslands, ýmist samkvæmt lögum, samningum eða að ósk Hagstofunnar. Eftirtaldar nefndir og hópar eru virkar:
 
Ráðgjafarnefndir

Ráðgjafarnefnd um vísitölu neysluverðs. Nefndin starfar samkvæmt lögum um vísitölu neysluverðs nr. 12/1995 og skal hún vera Hagstofunni til ráðgjafar um gerð vísitölunnar og fylgjast með reglubundnum útreikningi hennar. Nefndin er skipuð einum fulltrúa tilnefndum af Hæstarétti, einum tilnefndum af Alþýðusambandi Íslands og einum tilnefndum af Samtökum atvinnulífsins.
Ráðgjafarnefnd um vísitölu neysluverðs heyrir undir hagstofustjóra.

Ráðgjafarnefnd um vinnumarkaðstölfræði. Nefndin starfar samkvæmt samningi Hagstofu Íslands og Kjararannsóknarnefndar um launakannanir og aðrar vinnumarkaðsrannsóknir frá 9. september 2004. Hlutverk nefndarinnar er að fylgjast með framkvæmd þessa samnings og vera Hagstofunni til ráðgjafar um gerð vinnumarkaðsrannsókna, einkum launakannana. Í ráðgjafarnefndinni sitja tveir sérfræðingar frá Alþýðusambandi Íslands og tveir frá Samtökum atvinnulífsins.
Ráðgjafarnefnd þessi heyrir undir skrifstofustjóra félagsmálasviðs.

Ráðgjafarnefnd um mannfjöldaspár. Nefndin starfar að ósk Hagstofu Íslands og er ætlað að veita ráðgjöf um forsendur og framsetningu framreikninga um mannfjöldann. Henni er auk þess ætlað að rýna í aðferðir og útreikninga við gerð mannfjöldaspáa. Í ráðgjafarnefndinni sitja Ólöf Garðarsdóttir mannfjöldafræðingur, Jón Vilhjálmsson verkfræðingur og Sigurður Guðmundsson skipulagsfræðingur.
Ráðgjafarnefnd þessi heyrir undir skrifstofustjóra félagsmálasviðs. 

Notendahópar
Notendahópar starfa að ósk Hagstofunnar. Markmiðið með þessu starfi er að Hagstofan eigi reglubundna fundi með fulltrúum mikilvægra notenda hagtalna, svo sem stjórnvalda, rannsóknar- og kennslustofnana, viðskiptalífs og hagsmunasamtaka, til að skapa tengsl við notendur, gefa þeim kost á að koma á framfæri sjónarmiðum sínum um hagskýrslugerðina og styrkja á þann hátt starfsemi Hagstofunnar. Tilgangurinn er enn frekar sá að kynna það sem fram fer á nokkrum helstu sviðum hagskýrslugerðarinnar og fá frá notendum sjónarmið, ábendingar og gagnrýni á það efni sem Hagstofan vinnur og birtir, hvað notendum sýnist helst vanta eða vera ofaukið og ræða um framsetningu efnisins og aðgengi að hagtölunum og lýsigögnum. Notendahóparnir heyra allir undir hagstofustjóra.

Nú eru starfandi eftirtaldir notendahópar:

Notendahópur um verðvísitölur. Hópurinn er skipaður fulltrúum frá eftirtöldum stofnunum, fyrirtækjum og samtökum:
  • Efnahags- og viðskiptaráðuneyti, Seðlabanka Íslands og Viðskiptaráði
  • Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og Háskólanum á Bifröst
  • Viðskiptabönkunum Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankanum
  • Ráðgjafarnefnd um vísitölu neysluverðs skv. lögum nr. 12/1995.
Fundargerðir notendahóps um verðvísitölur

Notendahópur um vinnumarkaðstölfræði. Hópurinn er skipaður fulltrúum frá eftirtöldum stofnunum, fyrirtækjum og samtökum:
  • Efnahags- og viðskiptaráðuneyti og Seðlabanka Íslands
  • Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og Háskólanum á Bifröst
  • Viðskiptabönkunum Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankanum
  • Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, launanefnd sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins og starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytis.
Fundargerðir notendahóps um vinnumarkaðstölfræði

Notendahópur um þjóðhagsreikninga. Hópurinn er skipaður fulltrúum frá eftirtöldum stofnunum, fyrirtækjum og samtökum:
  • Efnahags- og viðskiptaráðuneyti og Seðlabanka Íslands
  • Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og Háskólanum á Bifröst
  • Viðskiptabönkunum Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankanum
  • Samtökum atvinnulífsins og Alþýðusambandi Íslands.
Fundargerðir notendahóps um þjóðhagsreikninga

 

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi