ÍSAT2008

Hinn 1. janúar 2008 tók gildi ný atvinnugreinaflokkun á Íslandi, ÍSAT2008. Flokkunin er byggð á nýrri atvinnugreinaflokkun Evrópusambandsins, NACE Rev. 2, sem gildir í öllum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins. Nýju flokkuninni er nú beitt í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra og í opinberri hagskýrslugerð af Hagstofu Íslands.

Gildistaka hins nýja flokkunarkerfis er lögbundin samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Atvinnugreinaflokkun er meðal mikilvægustu flokkunarkerfa í hagskýrslugerð, þar sem samræmt flokkunarkerfi tryggir samanburðarhæfni á hagstærðum atvinnulífsins milli þjóða. Öllum lögskráðum félögum og einstaklingum í atvinnurekstri ber samkvæmt því að  hafa skráða starfsemi samkvæmt ÍSAT2008 í fyrirtækjaskrá frá og með 1. janúar 2008.

ÍSAT2008 leysir af hólmi ÍSAT95 frá árinu 1995. Uppbygging flokkunarkerfisins er í grunninn óbreytt þar sem fyrstu fjórir stafirnir eru í samræmi við NACE og fimmti stafur notaður þar sem talin er þörf á meiri sundurgreiningu en NACE flokkunarkerfið býður uppá. Þar sem NACE Rev. 2 er töluvert ýtarlegra en fyrri útgáfa fækkar séríslenskum undirgreinum nú frá því sem var í ÍSAT95.


ÍSAT2008
  Formáli
  Efnisyfirlit
  Inngangur
Bálkur A  Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar
Bálkur B  Námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu
Bálkur C  Framleiðsla
Bálkur D  Rafmagns-, gas- og hitaveitur
Bálkur E  Vatnsveita, fráveita, meðhöndlun úrgangs og afmengun
Bálkur F  Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð
Bálkur G  Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum og bifhjólum
Bálkur H  Flutningar og geymsla
Bálkur I  Rekstur gististaða og veitingarekstur
Bálkur J  Upplýsingar og fjarskipti
Bálkur K  Fjármála- og vátryggingastarfsemi
Bálkur L  Fasteignaviðskipti
Bálkur M  Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi
Bálkur N  Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta 
Bálkur O  Opinber stjórnsýsla og varnarmál; almannatryggingar 
Bálkur P  Fræðslustarfsemi
Bálkur Q  Heilbrigðis- og félagsþjónusta 
Bálkur R  Menningar-, íþrótta- og tómstundastarfsemi 
Bálkur S  Félagasamtök og önnur þjónustustarfsemi 
Bálkur T  Atvinnurekstur innan heimilis, þjónustustarfsemi og framleiðsla á ýmis konar vöru á heimilum til eigin nota 
Bálkur U  Starfsemi stofnana og samtaka með úrlendisrétt 
  Viðauki
  Atriðisorðaskrá

ÍSAT2008 - Yfirlitstöflur 
Leitarvél ÍSAT2008 – Hér er hægt að leita í ÍSAT2008 eftir leitarorði eða atvinnugreinarnúmeri
Leitarvél ÍSAT95 – Hér er hægt að leita í ÍSAT95 eftir leitarorði eða atvinnugreinarnúmeri
ÍSAT2008 í MS Access gagnagrunni, búið er að pakka þessu sem ZIP skrá
NACE Rev.2 (pdf)

Ef einhverjar spurningar vakna um endurskoðun íslenskrar atvinnugreinaflokkunar og nýtt ÍSAT2008 flokkunarkerfi, þá vinsamlegast sendið tölvupóst á isat

 

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi