Nánar um flokk
Fyrirtækja- og framleiðsludeild vinnur upplýsingar um magn og verðmæti landaðs afla ásamt ráðstöfun hans. Upplýsingarnar eru unnar upp úr Lóðs, en svo heitir aflaskráningarkerfi Fiskistofu sem nær til allra löggiltra löndunarhafna landsins, og upp úr vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá aflakaupendum. Hagstofan vinnur margvíslegar upplýsingar sem birtast m.a. í Útvegi, ársriti Hagstofunnar um sjávarútveg.
Verðvísitölur fiskafla og sjávarafurða
Fiskafli
Hér eru birtar verðvísitölur fiskafla upp úr sjó. Vísitölurnar eru sýndar eftir mánuðum og frá ársbyrjun 1997. Þær eru tvískiptar, annars vegar er sýnd verðvísitala þess afla sem seldur er samkvæmt beinum samningum útgerðar og sjómanna við fiskverkun og hins vegar verðvísitölur þess afla sem seldur er á fiskmörkuðum. Verðvísitölurnar eru sýndar fyrir botnfisk á fiskmarkaði og í beinum samningum, og fyrir loðnu og síld en báðar þessar fisktegundir eru eingöngu seldar í beinum samningum.
Verðvísitölur þessar eru fengnar úr gögnum Verðlagsstofu skiptaverðs sem vinnur þær úr gögnum Fiskistofu. Þessi skýrslugerð hófst í ársbyrjun 1997 og er verðvísitalan miðuð við þann upphafspunkt. Magngrunni verðvísitölunnar er breytt árlega og alla jafnan notað magn næsta árs á undan, (Laspeyres). Í magngrunni verðvísitölunnar er magn allra fisktegunda ársins á undan í fiskverkun annarsvegar og á fiskmörkuðum hinsvegar.
Sjávarafurðir
Hér eru birtar vísitölur afurðaverðs fyrir allar helstu greinar fiskvinnslu eftir mánuðum, frá ársbyrjun 1986. Vísitölurnar sýna verðþróun í SDR og í íslenskum krónum. Frá 1986 til ársins 2000 voru þær byggðar á upplýsingum frá helstu útflytjendum um dagverð um miðjan hvern mánuð og verð í þeim gjaldmiðli sem við á hverju sinni. Hvert verð er síðan umreiknað yfir í SDR og íslenskar krónur með meðalgengi mynta í viðkomandi mánuði. Frá árinu 2000 hefur þessu verið breytt þannig að nú eru upplýsingarnar frá útflytjendum á meðalverði hvers mánaðar og upplýsingarnar eru í íslenskum krónum og hvert verð síðan umreiknað yfir í SDR. Meginreglan er að magngrunni vísitölunnar er breytt árlega og framleiðsla eða sala næsta árs á undan notuð.
Frá og með árinu 1989 er í magngrunni vísitölunnar magn einstakra pakkninga (t.d. einstakra pakkninga af þorskblokk). Á þann hátt er tryggt að magngrunnurinn sé samsettur úr vörutegundum þar sem hver vörutegund er einnar gerðar. Þar eð framleiðslan í heild er samsett úr miklum fjölda vörutegunda/pakkninga er nauðsynlegt að velja þær pakkningar sem vega þyngst eða eru dæmigerðar um verðþróun fleiri tegunda. Jafnframt er reynt að tryggja að í magngrunninum séu pakkningar með afurðum úr öllum helstu fisktegundum og markaðssvæðum. Þessar vísitölur voru áður notaðar við útreikning á verðjöfnunargreiðslum hjá Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins. Þær ættu yfirleitt að vera mun betri mælikvarði á verðþróun en einingarverð úr útflutningsskýrslum. Ástæðan er sú að í útflutningsskýrslum er byggt á tollnúmerum sem iðulega hafa að geyma ólíkar pakkningar. Breytingar á einingarverði í einstökum tollnúmerum geta því hæglega verið einhvers konar blanda af hreinni verðbreytingu og samsetningarbreytingu milli pakkninga innan hvers tollnúmers.
Þjónusta sem veitt er:
- almennum fyrirspurnum er svarað í síma 528 1100 og með tölvupósti
- hægt er að vera áskrifandi að upplýsingum um afla og aflaverðmæti
Nánari upplýsingar veitir:
- Guðmundur Sigfinnsson í síma 528 1262 (afli og aflaverðmæti)
Upplýsingar um landbúnað koma frá ýmsum stofnunum er tengjast greininni. Nánari upplýsingar veitir:
- Hagþjónusta landbúnaðarins - www.hag.is
sími: 437 0122
Hvanneyri
311 Borgarnes - Bændasamtök Íslands - www.bondi.is
sími: 563 0300
Bændahöllinni við Hagatorg
107 Reykjavík