Nánar um flokk
Ferðamál
Hagstofa Íslands hóf reglubundna söfnun upplýsinga um framboð á gistirými og fjölda gistinátta á gististöðum í júní árið 1984. Árið 1995 var svo einnig byrjað að safna tölum um gestakomur í því skyni að kanna meðal dvalarlengd gesta. Í skýrslunum, sem sendar eru Hagstofunni mánaðarlega, kemur fram fjöldi gesta, gistinátta og útleigðra herbergja í viðkomandi mánuði ásamt gistirými staðarins. Niðurstöður gistináttatalningarinnar eru birtar samandregnar í töflum og yfirlitum, sundurliðaðar eftir tegund gististaða, landsvæðum og þjóðerni gesta.Gistiskýrslur - eyðublöð
Samgöngur
Hagstofan safnar upplýsingum um samgöngur og fjarskipti frá stofnunum og fyrirtækjum í greinunum.Fjarskipti
Upplýsingar um fjarskipti og póstþjónustu taka til almenna símakerfisins og farsímakerfa og almennrar póstþjónustu. Póst- og fjarskiptastofnun lætur Hagstofunni árlega í té tölulegar upplýsingar um málaflokkinn.Upplýsingatækni
Hagstofa Íslands safnar upplýsingum um upplýsingatækni með árlegum könnunum meðal fyrirtækja og einstaklinga. Tilgangurinn er að kanna aðgengi og notkun fyrirtækja og heimila á upplýsingatæknibúnaði og Interneti. Samanburðarhæfar kannanir eru gerðar á öðrum Norðurlöndum sem og í löndum Evrópusambandsins.
Þjónusta sem veitt er:
- almennum fyrirspurnum er svarað í síma 528 1100 og með tölvupósti
- á bókasafni Hagstofunnar eru veittar upplýsingar, hægt er að fá ljósrit úr skýrslum eða gögn á tölvutæku formi
Nánari upplýsingar veitir:
- Hildur Kristjánsdóttir í síma 528 1267 (ferðamál)
- Magnús S. Magnússon í síma 528 1014 (samgöngur)
- Ragnar Karlsson í síma 528 1051 (fjarskipti)
- Árni Fannar Sigurðsson í síma 528 1263 (upplýsingatækni)