Tæknilegar upplýsingar
PX-Web
Allt talnaefni á vefnum er birt með hjálp vefforritsins PX-WEB. Kerfið vinnur á sérsniðum tölfræðitöflum og birtir þær upplýsingar sem notandinn velur hverju sinni. Kerfið er sænskt að uppruna en Hagstofa Íslands hefur aðlagað það sínu kerfi. PX-töflur eru notaðar við birtingu hagtalna á vefjum allra hagstofa á Norðurlöndum og víðar.
PC-Axis
PC-Axis er forrit fyrir Windows 95/98/NT/2000 og XP sem vinnur með sömu gerð af töflum og PX-WEB. Forritið býður upp á sömu möguleika á PX-WEB og meira til. Notendur talnaefnis Hagstofunnar geta nýtt sér PC-Axis til að skoða gögn stofnunarinnar. Þegar notandi hefur valið töflu úr vefkerfinu getur hann vistað hana sem PC-Axis skrá og unnið frekar með hana þar. Forritið býður upp á viðbótarmöguleika, t.d. samlagningu, frádrátt, deilingu og hlutfallsreikning. Auk þess birtast fleiri aukastafir eftir kommu í þeim töflum sem það á við. Athugið að til þess að sjá fleiri aukastafi þarf að velja Laga - Breyta aukastöfum eða á ensku Edit - Change decimals.
Sækja PC-Axis
PC-Axis 2004 - Nýjasta útgáfa frá 18. maí 2004.
Til þess að setja upp forritið er nóg að sækja skrána, tvísmella á hana og fylgja leiðbeiningum frá uppsetningarforriti.