Ferðamál, samgöngur og upplýsingatækni
Talnaefni
Útgáfur
Gistiskýrslur 2012
Ferðamál, samgöngur og upplýsingatækni | 12. apríl 2013
|
|
Gistinætur voru rúmar 3,7 milljónir hér á landi árið 2012 og fjölgaði um 15,1% frá fyrra ári. Gistinætur erlendra gesta voru um 77% af heildarfjölda gistinátta á árinu. Þeim fjölgaði um 18% frá árinu 2011 en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 6%. Mikil aukning hefur orðið á seldum gistinóttum á undanförum árum. Þannig hefur heildarfjöldi gistinátta aukist um ríflega eina milljón eða um 36,7% á síðastliðnum 5 árum. Eins og mörg undanfarin ár gistu Þjóðverjar flestar nætur, þá Bretar og svo Bandaríkjamenn. Gistinóttum Kínverja fjölgaði þó hlutfallslega mest í samanburði við árið 2011 eða um 72%. |
Fréttir
Ferðamál | 6. júní 2013
Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 10% í apríl
Gistinætur á hótelum í apríl voru 133.000 og fjölgaði um 10% frá apríl í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru um 79% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 9% frá sama tíma í fyrra. Jafnframt fjölgaði gistinóttum Íslendinga um 12%.Nánar
Fleiri fréttir