Frá fyrri ársfjórðungi jókst heildarlaunakostnaður um 9,6% í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu (G). Á sama tímabili jókst heildarlaunakostnaður í samgöngum og flutningum (I) um 9,3%, í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (F) um 7,8% og í iðnaði (D) um 6,2%.

Heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna jókst um 6,2% í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu (G), um 6,0% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (F), um 3,4% í samgöngum og flutningum (I) og um 2,2% í iðnaði (D) milli þriðja og fjórða ársfjórðungs 2007.

Árshækkun heildarlaunakostnaðar frá fjórða ársfjórðungi 2006 var á bilinu 5,1% til  7,8%, mest í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu (G) en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (F).

Vísitala launakostnaðar, sem gefin er út ársfjórðungslega, sýnir breytingar á launakostnaði á vinnustund. Vísitalan er kostnaðarvísitala sem ekki er leiðrétt fyrir breytingum í samsetningu vinnuafls og vinnustunda. Breytingar á vísitölu launakostnaðar geta því endurspeglað verðbreytingu vinnustundar, breytt hlutfall yfirvinnustunda, breytt hlutfall vinnuafls með há/lág laun eða samspil umræddra þátta.

Breyting vísitalna frá fyrra ári, %
4. ársfjórðungur 2007 Heildar-
launakostnaður Annar launa-
Heildar- án óreglulegra  kostnaður
  launakostnaður greiðslna Heildarlaun en laun
Iðnaður (D) 6,2 6,9 5,8 8,1
Byggingarst. og mannvirkjagerð (F) 5,1 5,7 4,3 9,0
Verslun og viðgerðaþjónusta (G) 7,8 9,1 7,3 10,0
Samgöngur og flutningar (I) 5,4 7,2 4,9 8,0

Talnaefni