Frá fyrri ársfjórðungi 2007 hækkaði vísitala heildarlaunakostnaðar um 0,4% í iðnaði (D). Á sama tímabili lækkaði vísitalan í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (F) um 1,9%. Í samgöngum og flutningum (I) og verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu (G) lækkaði vísitalan um 0,7%.

Frá fyrri ársfjórðungi hækkaði vísitala heildarlaunakostnaðar án óreglulegra greiðslna um 1,5% í iðnaði (D) og 0,6% í samgöngum og flutningum (I). Þá lækkaði vísitalan um 1,3% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (F) og 0,2% í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu (G).

Árshækkun vísitölu heildarlaunakostnaðar frá þriðja ársfjórðungi 2006 var á bilinu 5,4% - 7,9%, mest í iðnaði (D) en minnst í samgöngum og flutningum (I).

Vísitala launakostnaðar, sem gefin er út ársfjórðungslega, sýnir breytingar á launakostnaði á vinnustund. Vísitalan er kostnaðarvísitala sem ekki er leiðrétt fyrir breytingum í samsetningu vinnuafls og vinnustunda. Breytingar á vísitölu launakostnaðar geta því endurspeglað verðbreytingu vinnustundar, breytt hlutfall yfirvinnustunda, breytt hlutfall vinnuafls með há/lág laun eða samspil umræddra þátta.

Breyting vísitalna frá fyrra ári, %
3. ársfj. 2007 Heildar-
launakostnaður
Heildar- Annar launa- án óreglulegra 
  launakostnaður Heildarlaun kostnaður greiðslna
Iðnaður (D) 7,9 7,6 9,4 8,3
Byggingarst. og mannv. (F) 5,7 5,3 7,6 6,0
Verslun og viðgerðaþ. (G) 7,1 7,1 7,3 6,9
Samgöngur og flutningar (I) 5,4 5,3 6,3 6,0

Talnaefni