Vísitala heildarlaunakostnaðar á fyrsta ársfjórðungi 2007 hækkaði um 2,1% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (F) frá fyrri ársfjórðungi en lækkaði í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu (G) um 1,7%, í samgöngum og flutningum (I) um 0,9% og í iðnaði (D) um 0,4%.

Á sama tímabili hækkaði vísitala heildarlaunakostnaðar án óreglulegra greiðslna um 3,8 % til 5,4%, mest í samgöngum og flutningum (I) en minnst í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu (G). Vísitala heildarlaunakostnaðar án óreglulegra greiðslna er ólík vísitölu heildarlaunakostnaðar að því leyti að hún tekur ekki tillit til greiðslna sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili s.s. desemberuppbót.

Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði kváðu almennt á um 2,9% hækkun launataxta frá 1. janúar 2007. Tryggingagjald lækkaði um 0,45% frá áramótum og er nú 5,34%. Þá hækkaði mótframlag atvinnurekanda til samtryggingarlífeyrissjóðs úr 7% í 8% á sama tíma.

Vísitala launakostnaðar, sem gefin er út ársfjórðungslega, sýnir breytingar á launakostnaði á vinnustund. Um er að ræða kostnaðarvísitölu sem ekki er leiðrétt fyrir breytingum í samsetningu vinnuafls og vinnustunda.  Breytingar á vísitölu launakostnaðar geta því endurspeglað verðbreytingu vinnustundar, breytt hlutfall yfirvinnustunda, aukið hlutfall vinnuafls með há/lág laun eða samspil umræddra þátta.

Breyting vísitalna frá fyrra ári, %
1. ársfj. 2007 Heildar-
launakostnaður
Heildar- Annar launa- án óreglulegra 
  launakostnaður Heildarlaun kostnaður geiðslna
Iðnaður (D) 13,4 13,0 15,0 14,0
Byggingarst. og mannv. (F) 7,7 7,5 8,7 8,1
Verslun og viðgerðaþ. (G) 4,0 3,9 4,5 6,5
Samgöngur og flutningar (I) 11,4 11,3 12,0 10,3


Talnaefni