Landsframleiðsla jókst um 4,4% á árinu 2021
Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir 2021 nam landsframleiðsla ársins 3.251 milljarði króna og jókst að raungildi um 4,4% frá fyrra ári samanborið við 6,8% samdrátt árið áður. Að teknu tilliti til mannfjöldaaukningar, sem nam 1,7%, jókst landsframleiðsla á mann um 2,7% að raungildi árið 2021.