- Hagtíðindi
- 06. júlí 2011
- ISSN: 1670-4762
-
Skoða PDF
Landsframleiðsla jókst um 2,0% að raungildi milli 4. ársfjórðungs 2010 og 1. ársfjórðungs 2011. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 5,1%, sem skýrist að mestu af mikilli aukningu birgða. Einkaneysla dróst saman um 1,6% og fjárfesting um 6,8%. Samneysla jókst hins vegar um 0,1%. Útflutningur dróst saman um 8,2% og innflutningur um 4,1% á sama tímabili. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxt milli ársfjórðunga, ekki ára.