Hagvísar í janúar 2011


  • Hagtíðindi
  • 07. janúar 2011
  • ISSN: 1670-4762

  • Skoða PDF
Vísitala neysluverðs í desember 2010 hækkaði um 0,33% frá fyrra mánuði (hækkaði um 0,43% án húsnæðis). Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,5% (3,5% án húsnæðis) en breytingin undanfarna þrjá mánuði jafngildir 4,6% ársverðbólgu (5,4% verðbólgu án húsnæðis). Samræmd neysluverðsvísitala EES á Íslandi í nóvember var óbreytt frá fyrra mánuði en hækkaði um 0,18% frá fyrra mánuði í EES-ríkjunum. Síðastliðna tólf mánuði hækkaði samræmda vísitalan um 3,8% á Íslandi og um 2,4% að meðaltali í EES-ríkjunum.

Til baka