- Hagtíðindi
- 11. desember 2015
- ISSN: 1670-4770
-
Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 4,1 milljarð króna á þriðja ársfjórðungi 2015. Það er betri niðurstaða en á sama tíma 2014 þegar afkoman var neikvæð um 5,5 milljarða króna. Tekjuhallinn nam 0,7% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 1,8% af tekjum hins opinbera. Fyrstu níu mánuði ársins nam hallinn 22,1 milljarði eða 3,3% af tekjum tímabilsins.