Frá desember 2017 til nóvember 2018, voru að jafnaði 18.343 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 652 (3,7%) frá síðustu 12 mánuðum þar á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 194.100 einstaklingum laun sem er aukning um 6.100 (3,2%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.
Í nóvember 2018 voru um 135.800 launþegar í viðskiptahagkerfinu og hefur þeim fjölgað um 2.600 (1,9%) samanborið við nóvember 2017. Í heild hefur launþegum í heild fjölgað um 4.500 (2,3%) á sama tímabili. Launþegum fækkaði milli ára í sjávarútvegi (-1,8%); tækni- og hugverkaiðnaði (-1,3%) og smásölu (-0,2%).
Fjöldi launagreiðenda og launþega | |||||
Launagreiðendur | Launþegar í nóvember | ||||
nóv. 2018 | 2017 | 2018 | Breyting | % | |
Allar atvinnugreinar | 18.556 | 190.500 | 195.000 | 4.500 | 2,3 |
Viðskiptahagkerfið (ÍSAT nr. 03-82, 95-96) | 14.621 | 133.200 | 135.800 | 2.600 | 1,9 |
Sjávarútvegur (ÍSAT nr. 031, 102) | 485 | 8.800 | 8.600 | -200 | -1,8 |
Framleiðsla án fiskvinnslu (ÍSAT nr. 10-33 án 102) | 1.058 | 17.200 | 17.800 | 600 | 3,7 |
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (ÍSAT nr. 41-43) | 2.906 | 13.400 | 14.400 | 1.000 | 7,4 |
Sala, viðgerðir og viðhald á vélknúnum ökutækjum og tengivögnum (ÍSAT nr. 45) | 518 | 3.600 | 3.700 | 100 | 2,7 |
Heildverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 46) | 1.016 | 9.000 | 9.100 | 100 | 1,1 |
Smásöluverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 47) | 894 | 16.200 | 16.200 | 0 | -0,2 |
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla (ÍSAT nr. 84-85) | 603 | 42.400 | 42.900 | 500 | 1,2 |
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta (ÍSAT nr. 86-88) | 1.176 | 16.200 | 16.800 | 600 | 3,5 |
Einkennandi greinar ferðaþjónustu (ÍSAT nr. 491, 4932, 4939, 501, 503, 511, 551-553, 561, 563, 771, 7721, 79) | 1.891 | 28.300 | 28.800 | 500 | 1,7 |
Tækni- og hugverkaiðnaður (ÍSAT nr. 20, 254, 26-30, 325, 53, 58, 60-63, 72) | 975 | 13.300 | 13.100 | -200 | -1,3 |
Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið vanmat í nýjustu tölum þegar launagreiðendur skila ekki inn upplýsingum tímanlega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar verða jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum og í talnaefni um endurskoðun hagtalna
Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.
Heildarfjöldi launagreiðenda í október 2018 telst nú vera 18.543 og heildarfjöldi launþega 192.700. Fjöldi launþega jókst um 4.100 (2,2%) frá október 2017 til október 2018.
Þegar tölur voru birtar 15. janúar sl. töldust vera 18.336 launagreiðendur og um 192.300 launþegar í október 2018. Fjöldi launþega var þá talinn hafa aukist um 3.600 (1,9%) frá október 2017 til október 2018.
Aðrar hagtölur um svipað efni
Hafa verður í huga að í tölum um launþega eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.
Hagstofa Íslands gefur út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja. Yfirlitið byggist á skattframtölum fyrir tekjuárin 2002–2017 og gefur ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.
Hagstofa Íslands framkvæmir samfellda vinnumarkaðsrannsókn (VMR) allt árið um kring og birtir helstu niðurstöður (atvinnuþátttöku, fjölda starfandi, atvinnuleysi o.fl.) mánaðarlega og ítarlegri sundurliðun (s.s. starfshlutfall og vinnutíma eftir atvinnugreinum) árlega. Í VMR eru einnig upplýsingar um þá sem eru sjálfstætt starfandi og aðeins eru taldir með þeir sem eru, skráðir í Þjóðskrá og með fasta búsetu á Íslandi. Því er eðlilegt að tölur í þessari frétt séu ekki nákvæmlega þær sömu og í VMR. Tölum um fjölda launagreiðenda og launþega er fyrst og fremst ætlað að sýna þróun til skamms tíma og sveiflur innan árs.
Hagstofa hóf nýlega birtingu á heildarfjölda starfandi samkvæmt skráargögnum, þ.e. bæði launþegum og öðrum. Þar eru starfandi meðal annars flokkaðir eftir aldri, kyni og lögheimili.
Talnaefni
Launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu
Launþegar í öllum atvinnugreinum