FRÉTT VINNUMARKAÐUR 22. JÚNÍ 2016

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 203.600 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í maí 2016, sem jafngildir 86,1% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 195.400 starfandi og 8.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 82,7% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 4,1%. Samanburður mælinga fyrir maí 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan jókst um tvö prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 12.500 og hlutfallið af mannfjölda jókst um 4,2 stig. Atvinnulausum fækkaði um 5.000 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu minnkaði um 2,7 prósentustig. Atvinnuleysi hefur ekki mælst jafn lágt í maímánuði síðan árið 2005 þegar það mældist einnig 4,1%.

Flæðirit – Vinnumarkaður 16-74 ára maí 2016


Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 2,2% í maí
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands hefur atvinnuleysi alltaf aukist á milli apríl og maí vegna aukinnar eftirspurnar ungs fólks (16-24 ára) eftir sumar- og/eða framtíðarstörfum. Atvinnuleysi þróaðist með öðrum hætti nú í maí en árin á undan þar sem á heildina dró úr atvinnuleysi á milli mánaða og hefur það nokkur áhrif á árstíðaleiðréttingu atvinnuleysistalna. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var atvinnuleysi 2,2% í maí samanborið við 4% í apríl. Leitni árstíðaleiðrétts atvinnuleysis síðustu 6 mánuði sýnir að atvinnuleysi hefur lækkað um 0,3 prósentustig. Ef litið er til síðustu tólf mánuði hefur atvinnuleysi lækkað um 0,8 stig.

 

 


Framkvæmd
Maí 2016 nær til fjögurra vikna, eða frá 2. til 29. maí. Úrtakið var 1.217 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.173 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 865 einstaklingum sem jafngildir 73,7% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,2 stig, hlutfall starfandi ±2,5 stig og og atvinnuleysi ±1,5 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

Allar tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungs eru bráðabirgðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í maí - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2014 (±95%)  2015 (±95%)  2016 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 84,9 1,9 84,2 2,3 86,1 2,2
Hlutfall starfandi 78,8 2,3 78,5 2,6 82,7 2,5
Atvinnuleysi 7,2 1,6 6,8 1,5 4,1 1,5
Vinnustundir 40,6 1,1 41,1 1,3 41,2 1,3
Vinnuafl 193.900 4.400 196.200 5.300 203.600 5.200
Starfandi 180.000 5.200 182.900 6.100 195.400 5.800
Atvinnulausir 13.900 3.100 13.200 3.500 8.200 3.000
Utan vinnumarkaðar 34.400 4.400 36.900 5.300 32.800 5.200
Áætlaður mannfjöldi 228.300 233.000 236.400
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
   
  des.15 jan.16 feb.16 mar.16 apr.16 maí.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,4 83,0 82,7 83,3 84,4 83,9
Hlutfall starfandi 80,6 80,6 80,0 80,3 81,0 82,1
Atvinnuleysi 2,2 2,9 3,3 3,6 4,0 2,2
Vinnustundir 40,4 40,7 40,3 40,3 40,3 40,2
Vinnuafl 191.000 194.700 193.900 194.900 200.000 197.500
Starfandi 186.800 189.100 187.500 187.900 192.100 193.200
Atvinnulausir 4.200 5.600 6.300 7.000 7.900 4.400
Utan vinnumarkaðar 40.700 40.000 40.400 39.200 37.000 37.900
Áætlaður mannfjöldi 231.700 234.700 234.300 234.100 237.000 235.400
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
   
  des.15 jan.16 feb.16 mar.16 apr.16 maí.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,9 82,9 83,0 83,1 83,3 83,5
Hlutfall starfandi 80,1 80,2 80,2 80,4 80,6 80,9
Atvinnuleysi 3,4 3,3 3,3 3,3 3,2 3,1
Vinnustundir 40,4 40,4 40,4 40,3 40,3 40,3
Vinnuafl 193.400 194.400 195.200 196.100 196.800 197.400
Starfandi 186.900 188.000 188.800 189.600 190.500 191.200
Atvinnulausir 6.500 6.400 6.400 6.400 6.400 6.200
Utan vinnumarkaðar 39.900 40.100 40.100 39.800 39.300 39.000
Áætlaður mannfjöldi 233.300 234.500 235.300 235.900 236.200 236.400

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.