FRÉTT VINNUMARKAÐUR 24. ÁGÚST 2016

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 205.400 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í júlí 2016, sem jafngildir 86,2% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 201.100 starfandi og 4.300 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 84,4% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,1%. Samanburður mælinga fyrir júlí 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan jókst um 1,9 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 11.600 og hlutfallið af mannfjölda hækkaði um 2,6 stig. Atvinnulausum fækkaði um 1.600 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu lækkaði um 0,9 prósentustig. Atvinnuleysi hefur ekki mælst jafn lágt í júlímánuði síðan árið 2007 þegar það mældist 1,8%.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, júlí 2016

Samtala undirliða kann að vera ósamhljóða heildarniðurstöðu vegna þess að tölur eru jafnaðar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 2,9% í júlí
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 197.400 í júlí 2016 sem jafngildir 83% atvinnuþátttöku, sem er 0,3 prósentustigum hærri en hún var í júní. Fjöldi atvinnulausra í júlí var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 5.700 sem er aukning um 900 manns frá því í júní. Hlutfall atvinnulausra jókst því úr 2,5% í júní í 2,9% í júlí. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í júlí 2016 var 80,6%, sem er nánast sama hlutfall og í júní. Leitni vinnuaflstalna sýnir að atvinnuleysi hefur lækkað um 0,3 prósentustig sé horft til síðustu sex mánaða og um 1,1 stig á síðustu tólf mánuðum. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur aftur á móti aukist um 0,4 prósentustig og um 0,6 stig síðustu tólf mánuði.

Framkvæmd
Júlí 2016 nær til fjögurra vikna, eða frá 4. til 31. júlí. Úrtakið var 1.218 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.191 einstaklingur. Alls fengust nothæf svör frá 852 einstaklingum sem jafngildir 71,5% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,2 stig, hlutfall starfandi ±2,4 stig og og atvinnuleysi ±1,1 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í júlí - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2014 (±95%)  2015 (±95%)  2016 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 85,0 2 84,3 2 86,2 2,2
Hlutfall starfandi 82,2 2,1 81,8 2,2 84,4 2,4
Atvinnuleysi 3,3 1,1 3,0 1,1 2,1 1,1
Vinnustundir 42,0 1,2 43,0 1,3 42,5 1,5
Vinnuafl 196.000 4.500 195.400 4.800 205.400 5.300
Starfandi 189.600 4.900 189.500 5.100 201.100 5.600
Atvinnulausir 6.400 2.200 5.900 2.200 4.300 2.200
Utan vinnumarkaðar 34.700 4.500 36.300 4.800 32.800 5.300
Áætlaður mannfjöldi 230.600 231.700 238.200
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
  feb.16 mar.16 apr.16 maí.16 jún.16 júl.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,8 83,2 84,0 83,6 82,7 83,0
Hlutfall starfandi 80,2 80,5 81,1 81,8 80,7 80,6
Atvinnuleysi 3,2 3,2 3,5 2,1 2,5 2,9
Vinnustundir 40,2 40,3 40,3 40,2 39,9 39,7
Vinnuafl 193.400 193.800 197.000 195.700 193.100 197.400
Starfandi 187.300 187.500 190.000 191.600 188.400 191.700
Atvinnulausir 6.100 6.300 7.000 4.100 4.800 5.700
Utan vinnumarkaðar 40.100 39.000 37.400 38.500 40.300 40.300
Áætlaður mannfjöldi 233.600 232.900 234.400 234.200 233.400 237.700
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
  feb.16 mar.16 apr.16 maí.16 jún.16 júl.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,8 82,9 83,1 83,2 83,4 83,5
Hlutfall starfandi 80,3 80,4 80,6 80,8 81,0 81,1
Atvinnuleysi 3,1 3,0 3,0 2,9 2,8 2,8
Vinnustundir 40,3 40,3 40,2 40,1 40,0 39,9
Vinnuafl 194.200 194.500 195.000 195.500 195.900 196.300
Starfandi 188.200 188.700 189.300 189.900 190.300 190.700
Atvinnulausir 6.000 5.900 5.800 5.600 5.600 5.500
Utan vinnumarkaðar 40.300 40.100 39.800 39.400 39.100 38.900
Áætlaður mannfjöldi 234.500 234.700 234.800 234.900 235.000 235.100

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.