FRÉTT VINNUMARKAÐUR 25. MAÍ 2016

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 198.800 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í apríl 2016, sem jafngildir 84,1% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 188.900 starfandi og 9.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,9% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 4,9%. Samanburður mælinga fyrir apríl 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan jókst um 2,1 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 8.900 og hlutfallið af mannfjölda jókst um 2,5 stig. Atvinnulausum fækkaði um 800 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu minnkaði um 0,6 prósentustig.

Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða útaf árstíðabundnum þáttum. Þetta má t.d. greinlega sjá á vormánuðum hvers árs þegar ungt fólk (16-24 ára) streymir inn á vinnumarkaðinn í leit að sumar- og/eða framtíðarstörfum. Áhrifin eru þá helst þau að til skamms tíma eykst atvinnuleysi verulega.

Flæðirit – Vinnumarkaður 16-74 ára apríl 2016

Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 3,7% í apríl
Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 199.200 í apríl 2016 sem jafngildir 84,2% atvinnuþátttöku og var einu prósentustigi hærri en í mars 2016. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var hlutfall starfandi fólks 81% og jókst um 0,7 prósentustig á milli mars og apríl 2016. Á sama tíma jókst atvinnuleysi 0,4 stig, en atvinnuleysið var 3,7% í apríl samanborið við 3,4% mars 2016. Þegar horft er á leitnitölur síðustu sex mánaða þá sýna vinnuaflstölur að frá því í nóvember 2015 hefur atvinnuþátttaka aukist um 0,3 prósentustig, atvinnuleysi hefur lækkað um sömu tölu og hlutfall starfandi fólks hefur aukist um 0,6 stig.

 

Framkvæmd
Mars 2016 nær til fjögurra vikna, eða frá 4. apríl til 1. maí. Úrtakið var 1.214 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.182 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 883 einstaklingum sem jafngildir 74,7% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,3 stig, hlutfall starfandi ±2,6 stog og atvinnuleysi ±1,6 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

Allar tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungs eru bráðabrigðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í apríl - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2014 (±95%)  2015 (±95%)  2016 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 79,2 2,6 82,0 2,1 84,1 2,3
Hlutfall starfandi 74,4 2,8 77,5 2,3 79,9 2,6
Atvinnuleysi 6,0 1,7 5,6 1,6 4,9 1,6
Vinnustundir 36,5 1,2 37,2 1,2 39,4 1,3
Vinnuafl 180.700 5.900 190.600 4.900 198.800 5.500
Starfandi 169.800 6.400 180.000 5.300 188.900 6.100
Atvinnulausir 10.900 3.100 10.600 2.700 9.800 3.200
Utan vinnumarkaðar 47.500 5.900 41.800 4.900 37.600 5.500
Áætlaður mannfjöldi 228.200 232.400 236.400
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
   
  nóv.15 des.15 jan.16 feb.16 mar.16 apr.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,2 82,4 82,9 82,8 83,2 84,2
Hlutfall starfandi 79,6 80,6 80,7 80,1 80,4 81,0
Atvinnuleysi 4,3 2,2 2,7 3,2 3,4 3,7
Vinnustundir 40,3 40,4 40,7 40,3 40,3 40,3
Vinnuafl 194.900 191.000 194.200 193.800 194.300 199.200
Starfandi 186.400 186.700 189.000 187.600 187.800 191.700
Atvinnulausir 8.400 4.300 5.200 6.200 6.500 7.500
Utan vinnumarkaðar 39.300 40.700 40.000 40.300 39.300 37.400
Áætlaður mannfjöldi 234.100 231.700 234.200 234.100 233.600 236.600
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
   
  nóv.15 des.15 jan.16 feb.16 mar.16 apr.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,8 82,9 82,9 82,9 83,0 83,1
Hlutfall starfandi 79,8 80,0 80,1 80,1 80,2 80,4
Atvinnuleysi 3,6 3,5 3,4 3,3 3,3 3,3
Vinnustundir 40,4 40,4 40,4 40,4 40,3 40,3
Vinnuafl 192.300 193.300 194.200 195.000 195.700 196.200
Starfandi 185.300 186.600 187.700 188.500 189.200 189.700
Atvinnulausir 7.000 6.700 6.500 6.500 6.500 6.500
Utan vinnumarkaðar 39.800 40.000 40.200 40.200 40.100 39.800
Áætlaður mannfjöldi 232.100 233.300 234.400 235.200 235.800 236.100

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.