FRÉTT VINNUMARKAÐUR 04. FEBRÚAR 2016

Atvinnuleysi var 3,1% á fjórða ársfjórðungi 2015
Á fjórða ársfjórðungi 2015 voru 189.200 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 183.300 starfandi og 5.900 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 81,6%, hlutfall starfandi mældist 79% og atvinnuleysi var 3,1%. Frá fjórða ársfjórðungi 2014 fjölgaði starfandi fólki um 5.300 og hlutfallið jókst um 1,5 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 1.800 manns og hlutfallið sömuleiðis um eitt prósentustig. Atvinnulausar konur voru 2.100 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 2,3%. Atvinnulausir karlar voru 3.800 eða 3,8%. Atvinnuleysi var 3,6% á höfuðborgarsvæðinu en 2.2% utan þess.

Langtíma atvinnuleysi
Á fjórða ársfjórðungi 2015 voru 900 manns sem höfðu verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur samanborið við 1.000 manns á fjórða ársfjórðungi 2014.

Vinnutími
Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku voru 39,7 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 45,5 klst. hjá þeim sem voru í fullu starfi og 22,6 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Unnið á hefðbundnum vinnutíma
Á fjórða ársfjórðungi 2015 unnu 23,9% af öllu starfandi fólki aðeins á hefðbundnum vinnutíma, það er að segja ekki kvöld-, nætur- eða helgarvinnu. Ef frá eru taldir launamenn sem stunda vaktavinnu þá unnu að jafnaði 31,1% starfandi fólks aðeins á hefðbundnum vinnutíma. Nokkuð áberandi er að það falli saman að launamenn séu í hlutastörfum og þeir stundi vaktavinnu. Á fjórða ársfjórðungi 2015 voru 47,9% þeirra sem voru í hlutastarfi í vaktavinnu til samanburðar við 19,7% þeirra sem voru í fullu starfi.

Vinnumarkaður á fjórða ársfjórðungi 2015 - Hagtíðindi

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.