FRÉTT VINNUMARKAÐUR 06. MAÍ 2016

Atvinnuleysi var 3,2% á fyrsta ársfjórðungi 2016
Á fyrsta ársfjórðungi 2016 voru 190.400 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 184.300 starfandi og 6.100 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 81,8%, hlutfall starfandi mældist 79,2% og atvinnuleysi var 3,2%. Frá fyrsta ársfjórðungi 2015 fjölgaði starfandi fólki um 5.100 og hlutfallið jókst um 1,7 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 1.900 manns og hlutfallið sömuleiðis um 1,1 prósentustig. Atvinnulausar konur voru 2.300 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 2,5%. Atvinnulausir karlar voru 3.900 eða 3,8%. Atvinnuleysi var 3,1% á höfuðborgarsvæðinu en 3,4% utan þess.

Langtíma atvinnuleysi
Á fyrsta ársfjórðungi 2016 höfðu 400 manns verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur samanborið við 1.500 manns á fyrsta ársfjórðungi 2015. Langtímaatvinnuleysi, sem hlutfall af heildar fjölda atvinnulausra var 6,2% samanborið við 18,4% á sama tíma fyrir ári. Hafa í raun ekki verið færri langtímaatvinnulausir síðan á fjórða ársfjórðungi 2008 þegar þeir voru um 200 manns.

Vinnutími
Á fyrsta ársfjórðungi 2016 voru 172.600 manns við vinnu í viðmiðunarvikunni, sem er 74,1% af mannfjölda og 93,7% af öllu starfandi fólki. Á fyrsta ársfjórðungi 2016 var meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku 39,1 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 34,1 klst. hjá konum og 43,4 klst. hjá körlum. Meðalfjöldi vinnustunda á viku hjá þeim sem voru í fullu starfi var 45,2 klst., 41,2 hjá konum og 47,7 klst. hjá körlum. Meðalfjöldi vinnustunda á viku hjá þeim sem voru í hlutastarfi voru 22,6 klst., 23,1 klst. hjá konum og 21,4 klst. hjá körlum.

Vinnumarkaður á 1. ársfjórðungi 2016 - Hagtíðindi

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.