FRÉTT VERÐLAG 28. JÚNÍ 2018

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 3,6% milli apríl og maí 2018.  Afurðir stóriðju hækkuðu um 11,8% (áhrif á vísitölu 3,9%), sjávarafurðir hækkuðu um 0,5% (0,1%), á meðan annar iðnaður lækkaði um 1,9% (-0,4%).

Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 8,5% frá maí 2017 til maí 2018.  Þar af hafa afurðir stóriðju hækkað um 19,9%, sjávarafurðir hækkað um 8,2% og matvæli hækkað um 0,6%. Annar iðnaður lækkaði hins vegar um 1,8% á sama tímabili.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 12% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkuðu um 2,2%.

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í maí 2018
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 197,3 3,6 3,6 8,5
Eftir atvinnugreinum        
Sjávarafurðir 244,9 0,5 0,1 8,2
Stóriðja 213,1 11,8 3,9 19,9
Matvæli 173,6 -0,2 0 0,6
Annar iðnaður 136,0 -1,9 -0,4 -1,8
         
Eftir mörkuðum        
Innlend sala 163,5 -0,8 -0,3 2,2
Útfluttar afurðir 218,0 6,1 3,9 12,0

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.