FRÉTT VERÐLAG 21. JÚLÍ 2017

Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,7% milli maí og júní 2017. Afurðir stóriðju lækkuðu um 2,2% (áhrif á vísitölu -0,7%), matvæli lækkuðu um 0,2% (0,0%), sjávarafurðir hækkuðu um 0,1% (0,0%), og annar iðnaður hækkaði um 0,1% (0,0%).

Miðað við júní 2016 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 10,2%. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 13,8%, annar iðnaður lækkað um 22,8%. Afurðir stóriðju hafa lækkað um 1,4% og matvæli lækkað um 2,3% á sama tímabili. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 9,5% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 11,6%.

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í júní 2017
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 180,6 -0,7 -0,7 -10,2
Eftir atvinnugreinum        
Sjávarafurðir 226,5 0,1 0,0 -13,8
Stóriðja 173,7 -2,2 -0,7 -1,4
Matvæli 172,2 -0,2 0,0 -2,3
Annar iðnaður 138,6 0,1 0,0 -22,8
         
Eftir mörkuðum        
Innlend sala 160,0 0,0 0,0 -11,6
Útfluttar afurðir 192,5 -1,1 -0,7 -9,5

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.