FRÉTT VERÐLAG 30. MAÍ 2018

Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 1,3% milli mars og apríl 2018. Afurðir stóriðju lækkuðu um 3,8% (áhrif á vísitölu -1,3%), annar iðnaður lækkaði um 0,9% (-0,2%). Sjávarafurðir hækkuðu um 0,6% (0,2%).

Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 1,0% frá apríl 2017 til apríl 2018. Þar af hefur verð sjávarafurða hækkað um 3,2%, afurðir stóriðju hækkað um 1,1% og matvæli hækkað um 0,9%. Annar iðnaður lækkaði hins vegar um 2,8% á sama tímabili.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 1,3% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkuðu um 0,1%.

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í apríl 2018
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 190,5 -1,3 -1,3 1,0
Eftir atvinnugreinum        
Sjávarafurðir 243,6 0,6 0,2 3,2
Stóriðja 190,6 -3,8 -1,3 1,1
Matvæli 173,9 -0,1 0,0 0,9
Annar iðnaður 138,6 -0,9 -0,2 -2,8
         
Eftir mörkuðum        
Innlend sala 164,9 0,0 0,0 0,1
Útfluttar afurðir 205,4 -2,0 -1,3 1,3

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.