FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 01. JÚNÍ 2018

Samkvæmt bráðabirgðatölum var vöru- og þjónustujöfnuður á fyrsta ársfjórðungi 2018, eins og hann birtist í þjóðhagsreikningum og greiðslujöfnuði, jákvæður um 4,8 milljarða króna en hann var jákvæður um 6,4 milljarða á sama tíma árið 2017, á gengi hvors árs. Umreiknaður vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 27,8 milljarða króna en þjónustujöfnuður var hagstæður um 32,6 milljarða.

Heildarútflutningstekjur vegna vöru- og þjónustuviðskipta námu rúmum 272,1 milljörðum króna en heildarinnflutningur á vörum og þjónustu nam tæpum 267,4 milljörðum króna.

Þessar upplýsingar koma fram í brúartöflu á vef Hagstofunnar sem samræmir staðla vöruviðskipta og greiðslujafnaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.