FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 09. MARS 2018

Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2017 jókst að raungildi um 1,5% frá sama ársfjórðungi fyrra árs. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 4,4%. Einkaneysla jókst um 6,5%, samneysla um 2,4% og fjárfesting um 3,5%. Útflutningur jókst um 7,5% á sama tíma og innflutningur jókst um 15,4%. Helsti drifkraftur hagvaxtar að þessu sinni er einkaneysla.

Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst að raungildi um 0,6% frá 3. ársfjórðungi 2017.

Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2017 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.