FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 20. JANÚAR 2017

Vinsamlegast athugið að þessari fréttatilkynningu hefur verið breytt frá upprunalegri útgáfu. Ný fréttatilkynning var gefin út í staðinn.

Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs hækkaði milli áranna 2014 og 2015. Í fiskveiðum og -vinnslu hækkaði hlutfallið (án milliviðskipta) úr 24,3% í 27%, hækkaði í fiskveiðum úr 20,5% árið 2014 í 25,7% af tekjum árið 2015 og lækkaði í fiskvinnslu úr 14,2% í 13,5%.

Hreinn hagnaður (EBT) í sjávarútvegi, samkvæmt árgreiðsluaðferð, nam 17,5% árið 2015 samanborið við 15% árið áður. Í fjárhæðum nam hagnaðurinn 45,4 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð 24,4 milljarðar. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð er niðurstaðan 18,2% hagnaður 2015 eða 47,1 milljarður, samanborið við 15,1% hagnað árið 2014.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir sjávarútvegs í árslok 2015 tæpir 590 milljarðar króna, heildarskuldir tæpir 370 milljarðar og eigið fé rúmir 220 milljarðar.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í Hagtíðindum um hag veiða og vinnslu sem gefin hafa verið út.

Hagur veiða og vinnslu 2015 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.