Afli íslenskra skipa árið 2016 var 1.069,6 þúsund tonn sem er 247 þúsund tonnum minna en landað var árið 2015. Samdrátt í aflamagni á milli ára má nær eingöngu rekja til minni loðnuafla en ríflega 101 þúsund tonn veiddust af loðnu á síðasta ári samanborið við tæp 353 þúsund tonn árið 2015. Samdráttur í afla uppsjávartegunda var 32% á milli ára en alls veiddust tæp 576 þúsund tonn af uppsjávartegundum. Botnfiskafli nam 457 þúsund tonnum á síðasta ári sem er 4% aukning miðað við fyrra ár. Að venju er þorskaflinn uppistaðan í botnfiskaflanum en tæp 264 þúsund tonn veiddust af þorski á síðasta ári sem er 8% meira en árið 2015. Flatfiskaflinn var svipaður á milli ára og var tæp 24 þúsund tonnum á síðasta ári. Afli skel- og krabbadýra nam 12,7 þúsund tonnum sem er jafngildir 26% aukningu miðað við árið 2015.
Í desembermánuði var fiskaflinn rúm 59 þúsund tonn sem er 20% meiri afli en í desember 2015. Aukið aflamagn í desember skýrist af auknum uppsjávarafla, en afli uppsjávartegunda, kolmunna og síld, var 15 þúsund tonnum meiri en í desember 2015. Samdráttur varð hinsvegar í öðrum aflategundum, botnfiskafli dróst saman um 14%, flatfiskafli um 41% og skel- og krabbadýraafli um 28%.
Þrátt fyrir aukið aflamagn í desember má gera ráð fyrir að verðmæti aflans í desember hafi dregist saman um 5,5% sem skýrist af aflasamdrætti verðmætari tegunda.
Fiskafli | ||||||
Desember | Janúar-desember | |||||
2015 | 2016 | % | 2015 | 2016 | % | |
Fiskafli á föstu verði | ||||||
Vísitala | 57,9 | 54,7 | -5,5 | 88,2 | 84,0 | -4,8 |
Fiskafli í tonnum | ||||||
Heildarafli | 49.775 | 59.482 | 20 | 1.317.143 | 1.069.595 | -19 |
Botnfiskafli | 30.583 | 26.365 | -14 | 438.064 | 456.929 | 4 |
Þorskur | 19.773 | 15.908 | -20 | 244.463 | 264.355 | 8 |
Ýsa | 3.292 | 2.287 | -31 | 40.994 | 38.580 | -6 |
Ufsi | 2.083 | 2.630 | 26 | 48.217 | 49.631 | 3 |
Karfi | 3.371 | 4.094 | 21 | 58.508 | 63.651 | 9 |
Annar botnfiskafli | 2.064 | 1.446 | -30 | 45.882 | 40.712 | -11 |
Flatfiskafli | 1.364 | 803 | -41 | 23.540 | 23.939 | 2 |
Uppsjávarafli | 17.480 | 32.064 | 83 | 845.415 | 575.921 | -32 |
Síld | 8.697 | 13.212 | 52 | 109.355 | 117.398 | 7 |
Loðna | 0 | 0 | - | 352.866 | 101.089 | -71 |
Kolmunni | 8.783 | 18.852 | 115 | 214.870 | 186.915 | -13 |
Makríll | 0 | 0 | - | 168.279 | 170.514 | 1 |
Annar uppsjávarfiskur | 0 | 0 | - | 45 | 5 | -88 |
Skel-og krabbadýraafli | 348 | 250 | -28 | 10.069 | 12.720 | 26 |
Annar afli | 0 | 0 | - | 54 | 86 | 57 |
Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.