FRÉTT MANNFJÖLDI 21. JÚNÍ 2016

Hagstofa Íslands hefur gefið út Hagtíðindi um mannfjöldaþróun árið 2015. Þar kemur meðal annars fram að hinn 1. janúar síðastliðinn hafi íbúafjöldi á Íslandi verið 332.529 sem er 1% fjölgun frá sama tíma árið áður eða um 3.429 einstaklinga. Árið 2015 fæddust 4.129 börn en 2.178 manns létust. Fæddir umfram dána voru því 1.951. Þá fluttust 6.010 utan en 7.461 til landsins. Aðfluttir umfram brottflutta voru því 1.451 árið 2015.

Í upphafi árs 2016 var 61 þéttbýlisstaður á landinu með 200 íbúa eða fleiri. Auk þeirra voru 35 smærri byggðakjarnar með 50–199 íbúa. Alls bjuggu 311.850 í þéttbýli 1. janúar síðastliðinn og hafði þá fjölgað um 3.335 frá sama tíma ári fyrr. Í dreifbýli og smærri byggðakjörnum bjuggu alls 20.679.

Fjölmennasta sveitarfélagið var Reykjavík með 122.460 íbúa. Það fámennasta var hins vegar Skorradalshreppur þar sem bjuggu 53 íbúar. Árið 2015 fækkaði fólki í 30 sveitarfélögum og á þremur landsvæðum af átta.

Erlendir ríkisborgarar voru 26.485 hinn 1. janúar 2016 og af þeim voru Pólverjar langfjölmennastir. Alls höfðu 12.067 einstaklingar pólskt ríkisfang eða 46,6% allra erlendra ríkisborgara. Alls voru 42.024 landsmanna árið 2015 fæddir erlendis (20.827 karlar og 21.197 konur) eða 12,6% mannfjöldans, fleiri en nokkru sinni.

Mannföldaþróun 2015 — Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.