FRÉTT FYRIRTÆKI 29. JÚLÍ 2016

Nýskráningar einkahlutafélaga í júní 2016 voru 275. Síðustu 12 mánuði, frá júlí 2015 til júní 2016, hefur nýskráningum einkahlutafélaga fjölgað um 18% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.633 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.232 á fyrri 12 mánuðum. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í fasteignaviðskiptum þar sem þeim fjölgar úr 279 í 413, eða um 48% á síðustu 12 mánuðum. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna leigustarfsemi og ýmsa sérhæfða þjónustu þar sem nýskráningum fjölgaði úr 168 í 231 (38%) og flutninga og geymslu þar sem fjölgunin var úr 42 í 57 nýskráningar (36%). Mest hlutfallsleg fækkun nýskráninga síðustu 12 mánuði var í sérfræðilegri, vísindalegri og tæknilegri starfsemi, eða um 6% frá fyrra tímabili (úr 233 í 220).

Skráð gjaldþrot í júní 2016 voru 102. Gjaldþrotum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá júlí 2015 til júní 2016, hefur fjölgað um 12% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 840 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 751 á fyrra tímabili. Á síðasta 12 mánaða tímabili hefur gjaldþrotum fjölgað hlutfallslega mest í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum, þar sem þeim fjölgaði úr 124 í 174 frá fyrra tímabili (40%), en einnig má nefna fjölgun gjaldþrota í upplýsingum og fjarskiptum úr 38 í 50 (32%). Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum mest í fasteignaviðskiptum, úr 91 í 78 (14%).

Nýskráningar og gjaldþrot
  Júní   Júlí–júní  
  2016 2015 % 2015–2016 2014–2015 %
Nýskráningar ehf.            
Alls 275 200 38 2.633 2.232 18
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   11 8 38 96 98 -2
C Framleiðsla  12 5 140 98 82 20
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   36 24 50 327 279 17
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   23 27 -15 276 276 0
H Flutningar og geymsla   6 2 200 57 42 36
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   16 11 45 183 142 29
J Upplýsingar og fjarskipti  29 15 93 193 183 5
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   51 25 104 389 319 22
L Fasteignaviðskipti   33 29 14 413 279 48
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   16 21 -24 220 233 -6
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   28 17 65 231 168 38
Aðrar atvinnugreinar 14 16 -13 150 131 15
             
Gjaldþrot            
Alls 102 52 96 840 751 12
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   5 2 150 24 23 4
C Framleiðsla  4 2 100 43 47 -9
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   21 17 24 161 150 7
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   17 5 240 174 124 40
H Flutningar og geymsla   2 3 -33 22 24 -8
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   7 2 250 56 55 2
J Upplýsingar og fjarskipti  12 3 300 50 38 32
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   6 4 50 63 55 15
L Fasteignaviðskipti   12 2 500 78 91 -14
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   8 4 100 75 70 7
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   4 4 0 43 33 30
Aðrar atvinnugreinar 4 4 0 51 41 24

Talnaefni:
    Fyrirtæki
    Gjaldþrot

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.