FRÉTT FYRIRTÆKI 27. MAÍ 2016

Nýskráningar einkahlutafélaga í apríl 2016 voru 227. Síðustu 12 mánuði, frá maí 2015 til apríl 2016, hefur nýskráningum einkahlutafélaga fjölgað um 16% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.507 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.166 á fyrri 12 mánuðum. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í fasteignaviðskiptum þar sem þeim fjölgar úr 254 í 404, eða um 59% á síðustu 12 mánuðum. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna leigustarfsemi og ýmsa sérhæfða þjónustu þar sem nýskráningum fjölgaði úr 147 í 227 (54%) og rekstur gististaða og veitingarekstur þar sem fjölgunin var úr 144 í 173 nýskráningar (20%). Mest hlutfallsleg fækkun nýskráninga síðustu 12 mánuði var í landbúnaði, skógrækt og fiskveiðum, eða um 16% frá fyrra tímabili (úr 99 í 83).

Skráð gjaldþrot í apríl 2016 voru 123. Gjaldþrotum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá maí 2015 til apríl 2016, hefur fækkað um 6% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 732 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 777 á fyrra tímabili. Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum mest í fasteignaviðskiptum, úr 97 í 62 (36%), en einnig má nefna fækkun gjaldþrota í rekstri gististaða og veitingarekstri úr 65 í 45 (31%). Á síðasta 12 mánaða tímabili hefur gjaldþrotum fjölgað mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu, þar sem þeim fjölgaði úr 33 í 42 frá fyrra tímabili (27%), en einnig má nefna fjölgun gjaldþrota úr 52 í 59 í fjármála- og vátryggingastarfsemi (13%).

Nýskráningar og gjaldþrot
  Apríl   Maí - apríl  
  2016 2015 % 2015-2016 2014-2015 %
Nýskráningar ehf.            
Alls 227 185 23 2.507 2.166 16
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   7 13 -46 83 99 -16
C Framleiðsla  6 10 -40 89 86 3
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   27 20 35 300 257 17
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   30 22 36 274 284 -4
H Flutningar og geymsla   7 3 133 53 46 15
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   14 13 8 173 144 20
J Upplýsingar og fjarskipti  17 17 0 180 182 -1
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   21 16 31 349 318 10
L Fasteignaviðskipti   43 33 30 404 254 59
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   16 21 -24 224 217 3
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   29 6 383 227 147 54
Aðrar atvinnugreinar 10 11 -9 151 132 14
             
Gjaldþrot            
Alls 123 68 81 732 777 -6
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   2 0 - 20 23 -13
C Framleiðsla  9 5 80 46 53 -13
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   23 11 109 153 146 5
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   24 15 60 145 141 3
H Flutningar og geymsla   4 3 33 19 22 -14
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   6 6 0 45 65 -31
J Upplýsingar og fjarskipti  4 1 300 37 35 6
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   13 3 333 59 52 13
L Fasteignaviðskipti   13 14 -7 62 97 -36
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   10 5 100 61 70 -13
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   7 1 600 42 33 27
Aðrar atvinnugreinar 8 4 100 43 40 8

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.