FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 15. MARS 2018

Tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um 18,8 milljarða króna á 4. ársfjórðungi 2017. Þetta er mun betri niðurstaða en á sama tíma 2016 þegar afkoman var neikvæð um 88,5 milljarða króna, en tekjuhallinn á 4. ársfjórðungi 2016 skýrist öðru fremur af 105,1 milljarðs króna fjármagnstilfærslu frá ríkissjóði til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Tekjuafgangurinn nam 2,8% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 6,3% af tekjum hins opinbera.

Fjármál hins opinbera á 4. ársfjórðungi 2017 — útgáfa
Talnaefni (sjá Fjárhagur hins opinbera eftir ársfjórðungum 2004–2017)

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang opinberfjarmal@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.