FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 14. SEPTEMBER 2017

Tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um 12,9 milljarða króna á 2. ársfjórðungi 2017. Tekjuafgangurinn nam 2,1% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 4,8% af tekjum hins opinbera. Til samanburðar nam tekjuafgangurinn 2,2% af landsframleiðslu ársfjórðungsins á sama tíma árið 2016. Fyrstu 6 mánuði ársins nam afkoman 35,0 milljörðum króna eða sem nemur 6,5% af tekjum tímabilsins.

Vegna breytinga á gagnaskilum sem átt hafa sér stað í tengslum við innleiðingu laga um opinber fjármál er óvissa í uppgjöri fjármála hins opinbera meiri nú en undir venjulegum kringumstæðum. Niðurstöður um fjármál hins opinbera á 2. ársfjórðungi eru því settar fram með fyrirvara um breytingar sem kunna að verða vegna fyllri upplýsinga.


Fjármál hins opinbera á 2. ársfjórðungi 2017 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Fjárhagur hins opinbera eftir ársfjórðungum 2004-2017)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang opinberfjarmal@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.