FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 28. APRÍL 2016

Gistinætur á hótelum í mars voru 295.300 sem er 34% aukning miðað við mars  2015. Gistinætur erlendra gesta voru 89% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 37% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 18%.

Flestar gistinætur á hótelum í mars voru á höfuðborgarsvæðinu eða 205.500 sem er 30% aukning miðað við mars 2015. Um 70% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu. Næstflestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 43.200. Erlendir gestir með flestar gistinætur í mars voru: Bretar með 86.000, Bandaríkjamenn með 63.900 og Þjóðverjar með 20.300 gistinætur.

Á tólf mánaða tímabili frá apríl 2015 til mars 2016 voru gistinætur á hótelum 3.043.700 sem er 26% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

 

 

69,2% nýting herbergja á hótelum í mars 2016
Nýting herbergja var best á höfuðborgarsvæðinu í mars eða um 88,6%.

Gistinætur á hótelum
  Mars   Apríl - mars  
  2015 2016 % 2014-2015 2015-2016 %
             
Alls 219.756 295.270 34 2.409.610 3.043.722 26
Höfuðborgarsvæði 157.895 205.482 30 1.618.813 2.000.215 24
Suðurnes 9.886 13.553 37 115.569 145.193 26
Vesturland og Vestfirðir 6.975 9.924 42 104.217 127.197 22
Norðurland 8.939 15.261 71 167.448 198.264 18
Austurland 4.604 7.858 71 78.305 125.512 60
Suðurland 31.457 43.192 37 325.258 447.341 38
             
Íslendingar 30.284 35.798 18 337.469 337.572 0
Erlendir gestir 189.472 259.472 37 2.072.141 2.706.150 31

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.