Þjónustuviðskipti
Rafræn gagnaskil fyrir þjónustuviðskipti við útlönd
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram í gagnaskilum um þjónustuviðskipti íslenskra fyrirtækja og stofnana við útlönd.:
- Hvaða þjónusta var keypt eða seld erlendum aðilum. Nánari upplýsingar um alla þjónustuflokka og útskýringar á þeim er hægt að prenta út á excel formi skilgreiningu þjónustuflokka eða skoða á skilavefnum sjálfum.
- Viðskiptaland. Tilgreina þarf frá hvaða landi þjónustan er keypt eða til hvaða lands þjónustan er seld. Miðað er við ISO-3166 landaflokkunina.
- Verðmæti viðskipta. Annars vegar þarf að fylla inn upplýsingar um tekjur (útflutning) sem fyrirtæki eða stofnun hefur af sölu á þjónustu til erlendra aðila og hinsvegar þau gjöld (innflutning) sem fyrirtækið greiðir vegna kaupa á þjónustu frá erlendum aðilum. Verðmæti skal skrá í íslenskum krónum.
- Verðmæti viðskipta milli tengdra fyrirtækja. Í þeim tilvikum þar sem kaupandi eða seljandi þjónustunnar er tengdur fyrirtækinu s.s. móður-, dóttur- eða systurfélag þarf að skrá verðmæti þjónustunnar sem seld er til eða keypt er frá tengdu fyrirtæki erlendis í þar tilgreindan reit á skilavefnum.
Hægt er að vista skilaupplýsingar sem skráðar hafa verið og halda áfram síðar. Þegar allar upplýsingar hafa verið skráðar þarf að skila þeim rafrænt inná skilavefnum, það er ekki nóg að vista.
Nánari upplýsingar veita:
Vésteinn Ingibergsson
í síma 528-1156