Iðnaðarskýrslur
Rafræn gagnaskil fyrir iðnaðarskýrslur
Verðsöfnun fyrir iðnaðarskýrslur fer fram einu sinni á ári.
Vefslóð að rafrænum skilum er https://rannsokn.hagstofa.is/vefskil_app/?col=idnadur
Iðnaðarskýrslur 2009
Hagstofa Íslands óskar hér með eftir upplýsingum um iðnaðarstarfsemi á árinu 2009. Þær upplýsingar sem færðar voru inn á iðnaðarskýrslur ársins 2008 eru tilgreindar á síðunni. Framleiðsla nokkurra fyrirtækja, sem ekki skiluðu inn upplýsingum fyrir árið 2008, hefur verið áætluð og er áætlunin skráð á eyðublöð viðkomandi fyrirtækja. Fyrirtæki sem ekki voru með í fyrra, fá autt eyðublað og eru vinsamlega beðin um að skrá seldar framleiðsluafurðir í auðu línurnar á eyðublaðinu.
Til að skrá sig inn á síðuna, þarf að notast við kennitölu fyrirtækisins, og veflykil sem sendur hefur verið til viðkomandi fyrirtækis
Ef einhverjar athugasemdir eru varðandi upplýsingasöfnun þessa eða vandræði við innskráningu, þá ekki hika við að hafa samband við Stefán Sigurðsson í gegnum tölvupóst á netfangið stefan.sigurdsson@hagstofa.is eða í síma 528-1265
Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Sigurðsson eða í síma 528 1265