Frétt

fimmtudagur 1. september 2011
Nr. 155/2011

Starfsfólk í framhaldsskólum í nóvember 2010


Starfsfólki í framhaldsskólum fćkkar í fyrsta skipti á tíu ára tímabili
Haustiđ 2010 voru 2.513 starfsmenn í framhaldsskólum landsins í 2.412 stöđugildum. Ţar af voru 1.852 starfsmenn viđ kennslu í 1.846 stöđugildum. Starfsmönnum hefur fćkkađ um 69 manns frá fyrra ári en sé eingöngu miđađ viđ starfsmenn sem sinna kennslu fćkkar um 59 manns á milli ára. Fćkkun stöđugilda milli ára er enn meiri en fćkkun einstaklinga. Sé miđađ viđ alla starfsmenn framhaldsskólans fćkkar stöđugildum um 152 en sé miđađ viđ starfsmenn sem sinna kennslu fćkkar um 134 stöđugildi. Ţetta er athyglisvert í ljósi ţess ađ á undanförnum áratug hefur starfsmönnum í framhaldsskólum fjölgađ ár frá ári ţar til nú. Ađ jafnađi fjölgađi um tćplega 60 starfsmenn á ári allt til skólaársins 2008-2009. Frá skólaári 2000-2001 til og međ skólaárinu 2008-2009 hafđi starfsmönnum framhaldsskóla fjölgađ um 464 einstaklinga og stöđugildum um 461. Fjöldi starfsmanna og stöđugilda stóđ hins vegar nánast í stađ á milli skólaáranna 2008-2009 og 2009-2010.  


Tćplega 85% kennara í framhaldsskólum hafa kennsluréttindi, ekki fleiri síđasta áratug
Alls höfđu 84,9% starfsmanna viđ kennslu í nóvember 2010 kennsluréttindi. Hlutfalliđ hefur hćkkađ um 13,6 prósentustig á einum áratug, úr 71,3% skólaáriđ 2000-2001. Međ réttindakennara er átt viđ ţann starfsmann viđ kennslu sem hefur leyfisbréf frá menntamálaráđuneytinu til ađ kalla sig framhaldsskólakennara. Hlutfall réttindakennara hefur ekki veriđ svona hátt frá ţví ađ gagnasöfnun Hagstofunnar hófst fyrir rúmlega áratug. Merkja má talsverđan mun á kynjum en hćrra hlutfall kvenkennara hefur kennsluréttindi. Öll árin sem gagnasöfnun Hagstofu um starfsmenn skóla hefur stađiđ hafa hlutfallslega fleiri konur haft kennsluréttindi en karlar. Á síđasta skólaári höfđu 87,8% kvenkennara réttindi á móti 81,7% karlkennara, sem er sex prósentustiga munur. Mestur var munur á milli kynjanna skólaáriđ 2009-2010 eđa 9,8 prósentustig en minnstur skólaáriđ 2006-2007 ţegar hann var 1,4 prósentustig.

 

Ríflega fjórđungur kennara međ meistaragráđu eđa doktorsgráđu og hafa ekki veriđ fleiri
Ríflega fjórđungur framhaldsskólakennara (27,6%) er međ framhaldsmenntun úr háskóla, ţ.e. meistaragráđu, doktorsgráđu eđa sambćrilega menntun. Kennurum međ framhaldsmenntun hefur fjölgađ um 2,2 prósentustig frá fyrra skólaári og hefur hlutfall framhaldsskólakennara međ framhaldsmenntun ekki veriđ svo hátt frá upphafi gagnasöfnunar Hagstofu Íslands fyrir ríflega áratug. Sextíu og átta prósent framhaldsskólakennara hafa eingöngu lokiđ grunnprófi úr háskóla eđa sambćrilegum prófum en dćmi um slík próf eru t.d. bakkalárpróf. Rúmlega 4% kennara hafa minni menntun eđa ađ ekki er vitađ um menntun ţeirra. Skólaáriđ 2000-2001 höfđu 16,4% framhaldsskólakennara framhaldsmenntun úr háskóla. Kennurum međ framhaldsmenntun úr háskóla hefur ţví fjölgađ um 11,2 prósentustig á síđasta áratug.

 


Kennurum yfir fimmtugt fjölgar
Framhaldsskólakennarar eru fjölmennastir í aldurshópnum 50-59 ára eđa 32,5% starfsmanna viđ kennslu í nóvember 2010. Fćkkun kennara frá fyrra ári (59) dreifist á alla aldurshópa nema flokk 60 ára og eldri en ţar fjölgar kennurum um 7. Konur eru talsvert fleiri en karlar í aldurshópum undir fimmtugu en karlar eru fleiri í eldri aldursflokkum.

 

Um gögnin
Gögn um starfsfólk í framhaldsskólum eru fengin frá Fjársýslu ríkisins og frá skólunum. Viđmiđunartími gagna er nóvember fyrir ţau gögn sem safnađ hefur veriđ fyrir undanfarin skólaár. Árin 2001–2004 var gögnum safnađ í marsmánuđi en fyrir árin 1999 og 2000 í febrúarmánuđi. Til starfsfólks á framhaldsskólastigi telst allt starfsfólk sem var í launađri vinnu í nóvember 2010. Starfsfólk viđ kennslu eru allir ţeir sem stunduđu einhverja kennslu á viđmiđunartímanum. Kennarar sem ekki voru viđ kennslu á viđmiđunartímanum, s.s. vegna barneigna- eđa námsleyfis, eru ekki taldir sem starfsmenn viđ kennslu. Ţeir teljast ţó međ í heildarfjölda starfsfólks ef ţeir fengu laun á tímabilinu. Menntun starfsfólks byggist á hćstu gráđu eđa prófi sem starfsmađur hefur lokiđ.

Talnaefni

 

Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getiđ heimildar.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000, netfang menntamal[hja]hagstofa.is

 

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi