Frétt
ţriđjudagur - 2. júní 2009
Nr. 101/2009
Skólasókn í framhaldsskólum og háskólum haustiđ 2008
Nemendur á öllum skólastigum eru rúmlega 105 ţúsund
Skólaáriđ 2008-2009 er heildarfjöldi nemenda á landinu öllu 105.483. Á yfirstandandi skólaári eru skráđir 18.278 nemendur á leikskólastigi, 43.511 nemendur á grunnskólastigi, 25.590 nemendur á framhaldsskólastigi og 18.104 á skólastigum ofar framhaldsskólastigi. Nemendum á Íslandi hefur fjölgađ um 1.265 frá árinu áđur, eđa um 1,2%.
Um 7% 16 ára ungmenna sćkja ekki skóla
Skólasókn 16 ára ungmenna á Íslandi haustiđ 2008 var 93% sé miđađ viđ öll kennsluform (dagskóla, kvöldskóla og fjarnám). Skólasókn 16 ára ungmenna á landsvísu hefur haldist óbreytt frá haustinu 2006. Haustiđ 2005 voru flest 16 ára ungmenni í skóla en ţá náđi skólasókn 16 ára ungmenna 94%.
Nokkur munur er á skólasókn 16 ára ungmenna eftir landshlutum. Hlutfallslega flestir 16 ára unglingar sćkja skóla á Austurlandi en ţar er skólasókn 96%. Hins vegar sćkja hlutfallslega fćstir skóla á Suđurnesjum en ţar eru 88% 16 ára ungmenna skráđ í skóla. Munurinn á milli ţessara landshluta er ţví 8 prósentustig sem er umtalsverđur munur.
Ţađ er áhugavert ađ bera saman skólasókn 16, 17 og 18 ára ungmenna međ ţađ fyrir augum ađ sjá hversu hátt hlutfall nemenda heltist úr lestinni eftir fyrsta og annađ ár í framhaldsskóla. Tölur Hagstofunnar sýna ađ haustiđ 2008 er hlutfall 17 ára ungmenna í skólum landsins 85% en hlutfall 18 ára er 75%. Skólasókn hefur ţví lćkkađ um 8 prósentustig á milli 16 og 17 ára aldursárganganna en um 18 prósentustig á milli 16 og 18 ára árganganna.
Langflestir háskólanemendur í félagsvísindum, viđskipta- og lögfrćđi
Heildarfjöldi nemenda á háskóla- og doktorsstigi haustiđ 2008 var 16.944. Ţar af eru 39% (6.602) skráđir í greinar sem falla undir félagsvísindi, viđskipti og lögfrćđi. Nćstflestir, eđa 16%, eru nemendur á námssviđum sem falla undir menntunar- og kennslufrćđi hvers konar. Til samanburđar er hlutfall nemenda sem leggur stund á nám í verkfrćđi, framleiđslu og mannvirkjagerđ 9% en í raunvísindum, stćrđfrćđi og tölvunarfrćđi nema 7% af heildarfjölda nemenda á ţessum skólastigum.
Tćplega tveir af hverjum ţremur háskólanemum eru konur
Konur eru 64% allra nemenda á háskóla- og doktorsstigi haustiđ 2008. Ţćr eru fjölmennari en karlar á öllum námssviđum utan verkfrćđi og raunvísindagreina. Í verkfrćđi, framleiđslu og mannvirkjagerđ eru konur 34% nemenda en í raunvísindum, stćrđfrćđi og tölvunarfrćđi eru konur 37% nemenda. Flestar eru konur á námssviđum sem falla undir heilbrigđi og velferđ eđa 85% allra nemenda. Á sviđi menntunar og kennslufrćđa eru konur 84% allra nemenda.
Nemendur á doktorsstigi eru 282 og hefur fjölgađ úr 20 haustiđ 1998. Konur hafa veriđ í meirihluta međal doktorsnema frá haustinu 2001 og voru 59% doktorsnema haustiđ 2008. Erlendum doktorsnemum fer fjölgandi og eru erlendir ríkisborgarar 23% doktorsnema haustiđ 2008.
Fleiri tölur samkvćmt íslensku náms- og menntunarflokkuninni ÍSNÁM2008
Hagstofan birtir nú í annađ sinn tölur um fjölda nemenda samkvćmt hinni íslensku náms- og menntunarflokkun ÍSNÁM2008 sem byggir á hinum ađţjóđlega stađli ISCED97. Nú eru ađgengilegar tölur samkvćmt ÍSNÁM2008 frá hausti 1997 og hafa ţví fimm ár bćst viđ tímarađir samkvćmt ţessari flokkun. Ţá er í fyrsta sinn hćgt ađ skođa skóla eftir rekstrarformi og sjá fjölda nemenda í opinberum skólum og einkaskólum.
Um gögnin
Upplýsingum er safnađ beint frá skólunum og miđast viđ fjölda nemenda um miđjan október. Hver nemandi er ađeins talinn einu sinni ţótt hann stundi nám í tveimur skólum. Skólasókn er reiknuđ ţannig ađ nemendur eru flokkađir eftir aldri og lögheimili ţann 1. desember ár hvert og hlutfall ţeirra síđan reiknađ af fjölda í hverjum flokki.
Talnaefni:
Framhaldsskólar
Háskólar
Yfirlit