Nánar um flokk
Heilbrigđismál
Hagstofa Íslands vinnur grunnupplýsingar um mannfjöldann og ţróun hans. Ţćr eru mikilvćgar ţegar fjallađ er um heilbrigđismál. Má ţar nefna mannfjölda eftir kyni og aldri, frjósemi, dánartíđni, dánarorsakir og međalćvilengd. Einnig aflar Hagstofan gagna frá öđrum ađilum (Landlćknisembćttinu, Krabbameinsskrá K.Í., heilbrigđis- og tryggingamálaráđuneytinu o.fl.), um ýmsa ţćtti ţessa málaflokks, s.s. starfsemi sjúkrastofnana, starfsmenn í heilbrigđisţjónustu, nýgengi og tíđni sjúkdóma, um fóstureyđingar, ófrjósemisađgerđir og reykingavenjur og um sölu og neyslu lyfja. Ţá tekur Hagstofan saman upplýsingar um útgjöld til heilbrigđismála á grundvelli ţjóđhagsreikninga en einnig um útgjöld til félags og heilbrigđismála samkvćmt NOSOSKO/ESSPROS flokkunarkerfi.
Hagstofan birtir upplýsingar um ofangreint efni og miđlar ţví einnig til útgáfa og gagnasafna alţjóđastofnana svo sem NOMESKO, Eurostat og OECD.
Félagsmál
Hagstofa Íslands safnar eđa tekur saman ýmsar upplýsingar um félagsmál, m.a. eftir gögnum Tryggingarstofnunar ríkisins, ríkissjóđs, sveitarfélaga og lífeyrissjóđa. Međal efnis má nefna útgjöld til félags- og heilbrigđismála eftir málaflokkum (skv. skilgreiningum ESB, ESSPROS) og greiđendum. Ţar koma fram upplýsingar um fjármögnun lífeyris- og slysatrygginga, bćtur og bótaţega almannatrygginga og útgjöld atvinnuleysistryggingar og bćtur ţeirra og útgjöld til heilbrigđismála. Ţá eru ýmsar upplýsingar um útgjöld til öldrunarmála, um aldrađa og öryrkja og fjölda lífeyrisţega. Margvíslegar upplýsingar eru birtar um félagsţjónustu, m.a. um fjölda og aldur barna í dagvistun og á leikskólum, fjölda og tegund heimila sem njóta félagslegrar heimaţjónustu, fjárhagsađstođar og húsaleigubóta.
Dómsmál
Hagstofa Íslands gaf út dómsmálaskýrslur á árunum 1913-1977, ţó ekki samfellt. Útgáfan hefur legiđ niđri síđan en međ skráningu mála hjá hinum nýju hérađsdómstólum er unnt ađ draga saman upplýsingar um fjölda mála, málatíma og hvađa afgreiđslu mál fá. Umrćdd dómsmálagögn eru ađgengileg frá 1. júlí 1992, en ţá tóku hérađsdómstólarnir til starfa skv. lögum, nr. 92/1989, um ađskilnađ dómsvalds og umbođsvalds í hérađi.
Frá árinu 1997 hefur Hagstofan árlega gefiđ út tölulegar upplýsingar um fjölda mála, málatíma og afgreiđslu mála hjá hérađsdómum. Upplýsingarnar ná aftur til ársins 1993, sem var fyrsta heila ár sem hinir nýju hérađsdómar störfuđu.
Ţjónusta sem veitt er:
- almennum fyrirspurnum er svarađ í síma 528 1100 og međ tölvupósti
- á bókasafni Hagstofunnar eru veittar upplýsingar, hćgt er ađ fá ţar ljósrit úr skýrslum eđa gögn í tölvutćku formi
Nánari upplýsingar veitir:
- Sigríđur Vilhjálmsdóttir í síma 528 1054 (heilbrigđismál, stađa kynja)
- Kristinn Karlsson í síma 528 1060 (félagsmál)
- Magnús S. Magnússon í síma 528 1014 (dómsmál)